September
Elísabet Jóhannesdóttir, hótelstjóri
Elísabet Jóhannesdóttir, hótelstjóri

10.09.2004 September

Búið að vera fullbókað á síðan í sumar

Það er gott hljóðið í ferða og gistiþjónustuaðilum í Hornafirði eftir sumarið og þeir eiga líka von á góðu hausti. Það er búið að vera alveg fullt að gera og ofsalega gaman, hótelið fullt af ferða-og kvikmyndafólki segir Elísabet Jóhannesdóttir einn eigenda Hótel Hafnar. Það er búið að vera fullbókað á hótelinu síðan í sumar og fullt af fólki sem við höfum þurft að vísa annað, við látum enga fara burt án þess að hafa hjálpað þeim til að finna gististað. Síðasti ferðahópur sumarsins sem á bókað kemur í næstu viku. Þetta er fjórða sumarið okkar með Hótel Höfn og það besta segir Elísabet. Nú koma fleiri hópar í september en áður og það er eins og ferðamáti útlendinga sé að breytast því það er áberandi hvað margir ferðast um landið á einkabílum og panta fyrir sig sjálfir.

Um mánaðarmótin næstu förum við að snúa okkur að samkvæmislífinu og byrjum með diskó-þema í umsjá Hornfirska Skemmtifélagsins sem var með skemmtiþættina ,,Með allt á hreinu” í fyrra vetur og var frábærlega vinsælt og eins og þá munum við bjóða upp á helgarpakka á Diskóið segir Elísabet.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica