September
Frá sundæfingu
Frá sundæfingu

09.09.2004 September

Sunddeild Sindra komin á fullt skrið

Sunddeild Sindra byrjar æfingar í næstu viku og verða 7-8 ára saman á þriðjudögum kl.14:45, 9-10 ára á fimmtudögum kl. 14:45 og 11 ára og eldri á mánudögum og miðvikudögum. Hjá sunddeild Sindra stendur nú til að halda skriðsundsnámskeið og er það gert vegna fjölda fyrirspurna. Fyrirhugað er að námskeiðið verði 8 tíma skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna og mun það byrja miðvikudaginn 22. september n.k. Kennt verður á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og föstudögum.

Þeir sem hafa áhuga á að læra eða bæta skriðsundskunnáttuna geta látið skrá sig hjá Sigrúnu í síma 865-6961.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica