Fundur um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs
Opinn fundur um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs sem fyrsta skref í Vatnajökulsþjóðgarði verður haldinn í þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli sunnudaginn 12.sept. kl.14:00. Ráðherra mun þar kynna ákvörðun Ríkisstjórnarinnar um það að fara í þetta verkefni í nánu samstarfi við heimamenn og þar verða kynntar þessar hugmyndir að útlínu stækkaðs þjóðgarðs. Einnig verður kynnt hvernig menn sjá fyrir sér uppbyggingu í starfsmannahaldi eftir stækkun þjóðgarðs og munu sveitarstjórnir, ráðuneyti og aðrir hagsmunaaðilar fara yfir drög að reglum þar um og verður unnið úr því á næstu vikum. Formlega ætti undirbúningi að ljúka í haust segir Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri og á fundinum verður gerð grein fyrir starfsmannahaldi eftir að stækkun þjóðgarðsins verður staðfest.
Ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega tillögu Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra um að fyrsti áfangi í stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs verði stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli. Þjóðgarðurinn mun auk núverandi þjóðgarðs ná yfir syðsta hluta Vatnajökuls, friðlýsta svæðið í Lakagígum og þau svæði á jöklinum sem eru innan sveitarfélaganna, Skaftárhrepps og Hornafjarðar, sem ekki er ágreiningur um.
Ríkisstjórnin samþykkti hinn 26. september árið 2000 að unnið skyldi að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem næði til jökulhettunnar, en það yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu. Frá þeim tíma hefur verið unnið að undirbúningi stofnunar þjóðgarðsins undir forystu ráðuneytisins í nánu samráði við heimamenn. Nýverið skilaði ráðgjafarnefnd ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar, sem skipuð var fulltrúum sveitarfélaga sem fara með stjórnsýslu á Vatnajökli og annarra hagsmunaaðila, skýrslu til ráðuneytisins um þjóðgarðinn Vatnajökul.
Fundurinn í Skaftafelli er öllum opinn og vill ráðuneytisstjóri hvetja sem flesta til að koma og fylgjast með þessum merka áfanga





Skrifa athugasemd