Notaleg tilfinning að sigla undir seglum um Jökulsárlón
Í þessu augnabliki erum við að leggja af stað til Þorlákshafnar með víkingaskipið Íslending á flutningabíl, sagði Gunnar Marel Eggertsson í gærkvöldi þegar fréttamaður vefsins hafði samband við hann í gærkvöldi og spurði frétta frá Jökulsárlóni. Myndatökur fyrir Bjólfskviðu sem teknar voru Jökulsárlóni, fóru fram á mánudaginn. Þetta var erfitt en mjög gaman segir Gunnar, það bar svo brátt að með að Íslendingur yrði hérna í kvikmyndatöku svo tími var ekki alveg nógur til að undirbúa skipið fyrir þetta og það þurfti meiri vinnu en maður reiknaði með í upphafi til að allt gengi upp. Þetta gekk upp og allar tímasetningar líka, allir voru mjög ánægðir með hvað myndatakan gekk vel. Gunnar segir að óneitanlega hafi það verið ánægjulegt og notaleg tilfinning að sigla Íslendingi undir seglum um Jökulsárlón.
Frá Þorlákshöfn er áformað að sigla Íslendingi austur að Dyrhólaey þar sem myndatökur verða 20.og 21. sept. Siglt verður austur með viðkomu í Vestmannaeyjum og ef þarf beðið þar eftir hagstæðu veðri til Dyrhólaeyjar. Siglingarleiðin þangað er 70 mílur og með réttum byr tekur siglingin aðeins sjö klst. því Íslendingur gengur mjög vel undir fullum seglum. Ferðin getur líka tekið tugi klukkutíma ,allt eftir veðri. Í svona siglingu þarf tíu manna áhöfn til að skiptast á vöktum, fimm á vakt. Ef nauðsyn krefur notum við vélarafl, segir Gunnar, en það er alltaf best að fara á seglum. Íslendingur er smíðaður fyrir segl og það er besta meðferðin á honum og besta ferðalagið ef það er nokkur möguleiki.
Þegar myndatökum við Dyrhólaey lýkur siglir Íslendingur aftur til Þorlákshafnar, þar verður hann tekinn á bíl og fluttur til Keflavíkur þangað sem víkingaskipinu hefur verið búinn staður. Gunnar segir að búið hafi verið að ákveða að Íslendingur færi ekki meira á flot, og að þetta ferðalag hafi komið óvænt,en hver veit nema þetta sé byrjun á kvikmyndaferli víkingaskipsins, alla vega er mikill áhugi á víkinga-kvikmyndum.





Skrifa athugasemd