September
Helena með 7 punda laxinn
Helena með 7 punda laxinn

07.09.2004 September

Gaman að fara í silungs- og laxveiði

Það fer ekki á milli mála að Hornfirðingar eiga orðið sína eigin laxveiðiá, Laxá í Nesjum og það er stutt fyrir heimafólk að skreppa, að fengnu leyfi auðvitað og ná sér í soðið. Helena Ingvadóttir er ein þeirra sem hefur afskaplega gaman af að fara í silungs og laxveiði og hefur farið á veiðar með pabba sínum síðan hún var smá stelpa. Hún er nýkomin úr veiðiferð í Laxá þar sem hún fékk tvo laxa, sá stóri var sjö pund og 73 cm, veiddur á flugu (þýska snældu) og tók um 10 mínútur að ná honum á land. Ég fer mikið í veiði yfir sumarið, út um allar sveitir þar sem einhverja veiði er að hafa segir Helena, ég fer oft í Laxá sem er mjög skemmtileg veiðiá, þar er mikið af silungi og sjóbirtingi að ógleymdum laxinum. Hún hefur veitt þrjá laxa í sumar og fullt af urriðum og sjóbirtingi og ætlar að láta þessa laxveiði duga í sumar.

Dregið að landi í laxá í NesjumHeimir Karlsson eiginmaður Helenar segist ekki hafa fengið að koma með að veiða núna, hann hafi verið heima með börnin. Hann segir það yfirleitt lenda á sér að matreiða veiðina og ekki var að heyra að það væri honum svo mjög á móti skapi, laxinn ætti að sjóða og hafa glænýjar kartöflur með. Þannig væri hann ferskastur og bestur.

 

 

 

 

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica