Nokkur umferðaróhöpp á síðustu dögum
Þetta hefur verið tiltölulega gott umferðar-sumar, engin alvarleg slys aðeins minni háttar eymsli, segir Jón Garðar Bjarnason lögreglumaður á Höfn. Talsvert hefur þó verið um eignatjón vegna árekstra og útafaksturs. Í gærkvöldi varð árekstur tveggja bíla, jeppa og lítillar hópferðarbíls, á Skeiðarárbrú, meiðsli voru aðeins minni háttar.
Árlega verða árekstrar á Skeiðarárbrú og hafa orðið heldur fleiri í sumar en áður. Ástæðuna telur Jón Garðar aðallega vera vanmat ökumanna á aðstæðum. Á síðustu dögum hafa tvö umferðaróhöpp orðið á bílaleigubílum í nágrenni Hafnar, annað við Viðborð þar sem útlendingur missti stjórn á bílnum og lenti útaf. Hinn bíllinn valt skammt vestan við Almannaskarð eftir að hafa lent í lausamöl og fór tvær veltur, bíllinn er mikið skemmdur. Ökumaður hans var útlendingur. Í báðum þessum óhöppum slapp fólk án meiðsla.
Lögreglan á Höfn hefur í sumar lagt áherslu á aukið eftirlit í umferðinni með allt sem varðar öryggismálin Í umdæmi lögreglunnar hafa í sumar verið teknir á þriðja hundrað ökumenn fyrir of hraðan akstur og átta fyrir ölvunarakstur.





Skrifa athugasemd