Víkingaskipið Íslendingur á Jökulsárlóni
Hluti kvikmyndarinnar Bjólfskviðu verður tekinn á Jökulsárlóni og mun þar víkingaskipið Íslendingur verða notað í upptökunni sem mun fara fram í byrjun næstu viku. Víkingaskipið kom með flutningabíl frá Reykjanesbæ og var tekið af bílnum í gær. Skipið verður síðan sjósett, eða sett á lónið áður en upptökur hefjast. Skipstjóri, smiður skipsins og okkar helsti sérfræðingur í víkingaskipum Gunnar Marel Eggertsson fylgir skipinu og er því staddur á Jökulsárlóni þessa stundina. Gunnar segir að það sé stefnt að því að setja skipið á flot í kvöld, en aðstæður á lóninu séu mjög sérstakar og þurfi því vel að vanda til verksins. Eins og alþjóð er kunnugt um þá sigldi Gunnar og áhöfn hans Íslendingi til Bandaríkjanna og Kanada með viðkomu á Grænlandi árið 2000.
Eftir að hlutverki skipsins á Jökulsárlóni er lokið mun það verða notað við upptöku sem mun fara fram við Dyrhólaey seinni hluta þessa mánaðar. Skipið verður því flutt frá Jökulsárlóni landleiðina til Þorlákshafnar, þaðan mun það sigla til Vestmanneyja og bíða þar átekta þar upptökur hefjast við Dyrhólaey.





Skrifa athugasemd