Framkvæmdastjóri heimsminjaskrifstofu Unesco í Skaftafelli
Síðastliðinn sunnudag komu í Þjóðgarðinn Skaftafell framkvæmdastjóri heimsminjaskrifstofu Unesco, Francesco Bandarin ásamt konu sinni. Í för með honum var einnig Sigurður Þráinsson í Umhverfisráðuneytinu. Um síðustu helgi afhenti Bandarin,við formlega athöfn, Birni Bjarnasyni formanni Þingvallanefndar skjal þess efnis að Þingvellir hafi verið samþykktir á heimsminjaskrána. Það sem við vorum að gera þarna á sunnudaginn, sagði Sigurður, var að sýna framkvæmdastjóranum Skaftafell og Ragnar Frank þjóðgarðsvörður fræddi hann um sögu og náttúru staðarins. Bandarin var afskaplega hrifinn af Skaftafelli, náttúrunni og sérstaklega Skeiðarárjökli, þeirri landmótun sem fylgir jöklinum, jökulöldunum, hreyfingum jökulsins, eldsumbrotum og hlaupum.
Bandarin er mjög áhugasamur og opinn fyrir því að koma Skaftafelli á heimsminjaskrána, staðurinn væri slíkur að hann ætti að öllum líkindum heima þar, hins vegar sagði hann að það þyrfti að sækja um fyrir allt áhrifasvæði þessara náttúrufyrirbæris sem eru þarna mest mótandi á náttúrufarið, þá er verið að tala um annað hvort allan jökulinn eða syðri hluta hans. Það er kannski verjandi að það sé hálfur jökullinn, það er þá alla vega eldstöðin sem mótar syðri hlutann, Grímsvötnin og svæðið þar, segir Sigurður, einnig jökullinn, árfarvegirnir og Skeiðarársandur. Það þarf að vera heilrænt svæði út frá náttúrufari og landmótun og vinna þarf örlítið betur í þessu svæði áður en sótt er um.
Hver er ávinningurinn við að koma Skaftafelli á heimsminjaskrá?
Sigurður segir að hann sé heilmikill, þetta er viðurkenning um að viðkomandi svæði sé einstakt á heimsmælikvarða, þar eru yfir 700 staðir á skrá. Það segir okkur að þetta séu merkilegir og sérstakir staðir, ekki bara fyrir okkur íslendinga heldur allan heiminn og hugsanlega að ekki sé annar sambærilegur staður til á jörðinni.Hinsvegar getur það líka þýtt að ekki sé annar sambærilegur staður kominn inn á heimsminjaskrána eða hafi verið tilnefndur því aðeins einn slíkur er tekinn inn. Það er mjög líklegt að unnið verði að þessu en það gerist ekki neitt afgerandi á næstunni, mætti segja að ef við horfum til næstu 5 ára gæti það gerst á því tímabili segir Sigurður. Hugsanlega gætum við þurft að stækka þjóðgarðinn því Skeiðarársandur er inni á náttúruverndaráætlun sem samþykkt var á alþingi í vor.
Leita þarf samninga við viðkomandi landeigendur um friðlýsingu og hugsanlega að stækka Skaftafellsþjóðgarð niður sandinn til sjávar og upp í jökul. Samhliða því hugum við að tilnefningu Skaftafellsþjóðgarðs á heimsminjaskrá og segir Sigurður að komist hann í skrá megi búast við talsverðri aukningu ferðafólks til landsins vegna þess að töluverður hluti ferðafólks sækist eftir að fara á svona staði og það myndi skapa fleiri störf í ferðaþjónustunni sérstaklega á svæðinu þar í kring.
Ragnar Frank var að vonum mjög ánægður með heimsóknina og sagði að það hefði verið gaman að sjá hversu hrifin framkvæmdastjórinn Bandarin og kona hans voru af Skaftafelli , útsýninu, veðrinu og bara öllu og sögðu ,” þessi staður hefur allt það sem staður á heimsminjaskrá þarf að hafa. “.





Skrifa athugasemd