September
Hornafjarðarhöfn.
Hornafjarðarhöfn.

01.09.2004 September

Þokkalegur afli hjá smábátunum.

Með nýju fiskveiðiári lifnar yfir athafnalífinu við höfnin og þeir sem fyrir nokkru voru búnir með sínar aflaheimildir geta nú byrjað aftur. Ólafur Einarsson hjá Hornafjarðarhöfn segir að fjöldi smábáta sé svipaður og verið hefur, um 20 bátar . Nokkrir þeirra fóru á sjó í síðustu viku og var afli þokkalegur, samt óþarflega mikið af ufsa í aflanum. Netabátar hafa lítið veitt en góð veiði hefur verið í snurvoð. Einn bátur er á humar en þar er engin veiði núna. Sjómenn kvarta yfir mikilli drullu eða þörungum í sjónum á miðunum út af Hornafirði. Ólafur segir að þetta sé óvenju mikið og öll troll fyllist af þessum óþvera. sem ekki er vitað hvað er eða af hverju. Helst er haldið að þetta sé eitthvað þessari hlýu veðráttu í sumar að kenna og einnig að lengi hefur verið lítil hreifing sjávar.

Ólafur segir að framkvæmdir við frágangi á stálþili við Krosseyjar gangi hægt og örugglega. Dælupramminn Soffía er að fara af stað eftir sumarfrí og byrjar þá að dæla upp úr höfninni við nýja stálþilið. Framkvæmdir við innsiglinguna utan við Hornafjarðarós eru að hefjast og er von á dýpkunarskipi í þessari viku.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica