Byggðakvótinn næsta fiskveiðiár 3.200 þorskígildi
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar sem haldinn var sl. fimmtudag voru kynnt lög um stjórn fiskveiða með þeim breytingum sem gerðar hafa verið í sambandi við úthlutun byggðakvóta. fyrir fiskveiðiárið 2004/2005 en þá á að ráðstafa allt að 3.200 þorskígildum. Það er ekki nokkur leið fyrir okkur að reyna að rökstyðja umsókn um úthlutun, segir Halldóra B Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar, við fórum yfir þetta á fundinum og ef á að sækja um byggðakvóta núna þarf að uppfylla ákveðin skilyrði eða rök fyrir umsókninni og þau eru bara ekki til staðar hér.
Byggðakvótanum verður úthlutað til minni byggðarlaga, með færri en 1500 íbúa, sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og eru háð veiðum og vinnslu á botnfiski. Einnig til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landa afla í viðkomandi byggðarlögum., og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.
Að fengnum umsóknum sveitarfélaga tekur Sjávarútvegsráðuneytið ákvörðun um hvernig byggðakvótinn skiptist milli einstakra byggðarlaga og tilkynnir sveitarstjórnum niðurstöðuna . Sveitarstjórnum er jafnframt gefinn kostur á því að gera tillögur um skiptingu byggðakvótans milli fiskiskipa.
Halldóra segir að mjög séu skiptar skoðanir manna á því hvort þessi byggðarkvóti á rétt á sér eða ekki. Allavega eru úthlutunar reglurnar þannig að það verður enginn byggðarkvóti til Hornfirskra sjómanna á næsta fiskveiði ári.
Sé litið á þetta frá annari hlið þá hlýtur að vera jákvætt að ástandið á Hornafirði skuli ekki vera eins og líst er að þurfi til að vera umsóknarhæft.





Skrifa athugasemd