Ríki Vatnajökuls - Ágúst
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Kvennamót hjá Gólfklúbbi Hornafjarðar
      <description>Sunnudaginn 12. september heldur Golfklúbbur Hornafjarðar sérstakt kvennamót og er það sérstakur liður í að kynna golfíþróttina fyrir konum og félagsskapinn sem golfinu fylgir.  Í vor voru haldin námskeið jafnt fyrir karla og konur og voru konur mun fjölmennari. Nokkrar hafa greinilega fengið "bakteríuna" en við viljum auðvitað sjá enn fleiri konur og á vellinum segir Anna Halldórsdóttir hjá golfklúbbinum. 
Í dag eru tæplega 100 manns skráðir í klúbbinn, þar af um 20 konur. Golfíþróttin er ágætis fjölskylduíþrótt, nokkrir unglingar eru í klúbbnum og standa sig mjög vel. Það er samt athyglisvert að stelpur eru lítið að spila og skorum við á þær að kynna sér þessa íþrótt.</description>
130 þúsund ferðamenn í sumar.
      <description>Senn tekur að líða að því að sumir ferðaþjónustustaðir í  Hornafirði fari að loka eftir gott sumar, nokkrir hafa opið allt árið. Samkvæmt lauslegri talningu upplýsingaþjónustunnar  í Nýheimum munu um 130 þúsund ferðamenn, að lágmarki, hafa heimsótt Sveitarfélagið  Hornafjörð í sumar. Ekki er til heildarskráning ferðamanna frá fyrra ári en ljóst er að mikið meiri aðsókn er að Jöklasafninu en var í fyrra . Guðrún Ingimundardóttir starfsmaður Jöklasýningar og upplýsingaþjónustunnar segir að sú breyting að hafa  líka opið á morgnana og lengja opnunartímann hafi komið vel út því stundum hafi komið  2-3 ferðahópar  fyrir hádegi. Hún segir að ferðaskrifstofur séu farnar að hafa</description>
Almannaskarðsgöng lengdust um 104 m sl.viku
      <description>Gangagröfturinn gekk mjög vel í síðustu viku og afköst vikunnar voru 104 m. 
 Þessi afköst eru í raun með ólíkindum því bergið var mjög leiðinlegt mest alla vikuna 
og mikið þurfti að styrkja með ásprautun og bergboltum (10-15 m3 af steypu og 20-30 
bergboltar í hverja sprengifæru).  Þetta er mesta heildarframleiðsla sem nokkurn tíma hefur náðst í sprengdum göngum á landinu. Göngin eru nú orðin 757 m að lengd að sunnan plús 5 m að norðan - samtals 762 m eða 
66,3% af heildarlengd.</description>
Ræktar vínber í sólstofunni.
      <description>Þó kvartað sé yfir lélegri kræki-og bláberjasprettu  er ekki sömu sögu að segja hvað rifsber og sólber snertir, þar er mikill vöxtur. Brynja Hannesdóttir í Grænahrauni segir að uppskera sól- og rifsberja sé mjög góð, t.d. fékk hún um 18 kg  af rifsberjum  af  þrem plöntum og vöxtur sólberjanna var enn betri en rifsberjanna. Brynja hefur í mörg ár ræktað vínber í sólstofunni hjá sér og fær um 20 kg  af vínberjum á hverju hausti og þegar best lætur hefur hún fengið allt upp í 26 kg. Vínberin eru ekki orðin fullþroskuð en útlit er fyrir góða vínberjauppskeru  með haustinu.</description>
Skólabörn í Hofgarði fá heitan mat í hádeginu.
      <description>Skólinn í Hofgarði í Öræfum er fámennasti skólinn í Sveitarfélaginu Hornafirði a.m.k. í byrjun skólaárs. Skólinn var settur fyrir viku og er skólastarf að komast í sinn fasta farveg. Við höfðum samband við Pálínu Þorsteinsdóttur skólastjóra í Hofgarði og spurðum hana hvernig skólastarfið gengi fyrir sig í svona fámennum skóla: ,,Skólinn okkar er samkennsluskóli og við kennum frá kl. 9 – 15 alla virka daga, en yngstu börnin fara þó heim um hádegið á föstudögum. Kennarar eru þrír og að auki einn starfsmaður leikskólans.</description>
Níu nemendur í Hrollaugsstaðarskóla
      <description>Nemendur og kennarar Hrollaugsstaðaskóla eru mættir í skólann til starfa á þessu hausti. Í skólanum í vetur eru 9 nemendur á aldrinum 5 - 12 ára og kennarar eru tveir. Fyrstu dagarnir eru notaðir til aðlögunar þar sem námið fer fram utandyra eftir því sem aðstæður leyfa segir Þorbjörg Arnórsdótir skólastjóri. Farið er til berja, hreyfing stunduð, farið í sund og jafnvel fjallgöngu. Í  gær fimmtudag fórum við  í Öræfin að heimsækja skólann þar og á eftir var farið saman í sund í Flosalaug og var ferðin öll mjög skemmtileg. Nú á haustdögum á að nota tímann til að rannsaka plöntur og læra um blómin í haganum, jafnvel skreppa til berja smástund og njóta áfram þessa góða sumars, þrátt fyrir að skólinn sé byrjaður.Síðan á að vinna þemaverkefni um blóm og reyna þannig að flytja sumarið með sér inn í haustið og veturinn.</description>
Sögustundir 3-6 ára barna að hefjast aftur.
      <description>Nú þegar haustar og dimmir kemur sá tími að yngri börnin eru meira inni og njóta þess að heyra sögur og jafnframt ágætt að hvíla þau aðeins frá sjónvarpinu. Undanfarna vetur hefur Menningarmiðstöðin verið með sögustundir fyrir börn einkum þau yngri og hafa þessar stundir verið vinsælar og vel þegnar. Nú er sögustundin að byrja aftur öflugri og skemmtilegri en nokkru sinni.
Á bókasafninu í Menningarmiðstöðinni er góð aðstaða fyrir börn á öllum aldri og margt í boði. Á fimmtudögum í vetur eru börn á aldrinum 3 – 6 ára sérstaklega velkomin, því þá er í boði notaleg, fróðleg og umfram allt skemmtileg sögustund í umsjón Ragnhildar Guðmundsdóttur.</description>
Blómlegt getraunastarf hjá Sindra.
      <description>Getraunastarf Sindra hefur verið blómlegt, farið fram úr björtustu vonum segir Gestur Halldórsson sem sér um Tippstofu Sindra. Í gærkvöldi heimsótti Torfi Ásgeirsson  frá Reykjavík  Sindra, hélt fyrirlestur um getraunir og kenndi þeim á Vingetto getraunaforritið.
Torfi sagði að með notkun forritsins væri hægt að spara mikla peninga og fá meiri skemmtun af getrauninni  því auðvitað sé markmiðið, að hafa gaman að þessu. 
Megin kost  segir hann vera, að hér sé sölukerfið fyrir ungmennafélagið Sindra og það styrki félagið sú þátttaka sem hér fari fram.  Sindri er með þeim hæðstu  af landsbyggðinni og þeir fjölmennustu þ.e. mestur fjöldi einstaklinga og jafnvel þó Reykjavík væri talin með. Þetta sýnir hvað þið eruð miklu þroskaðri en aðrir, bætti Torfi við og brosti.</description>
Öræfin ehf kaupa Vesturhús á Hofi
      <description>Nýr ferðaþjónustustaður verður opnaður í Vesturhúsi á Hofi í Öræfum á næsta ári.. Það er fyrirtækið Öræfin ehf sem að þessu stendur og eru það eigendur þess Guðjón Marteinsson og Einar Torfi  Finnsson  ásamt fjölskyldum þeirra  sem keypt hafa Vesturhús. Þeir félagar hafa báðir starfað mikið í ferðaþjónustu og þekkja vel svæðið, Guðjón er leiðsögumaður og Einar Torfi er með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum. 
Við stefnum á að byrja í febrúar og ætlum að hafa opið allt árið segir Guðjón.</description>
Kartöfluspretta mikil og góð
      <description>Kartöflubændur í Hornafirði o.fl. fagna rigningunni sl. sólarhring þar sem allur gróður var orðinn alltof þurr og eins kartöflugarðarnir. Þrátt fyrir allt þetta þurrviðri lítur samt mjög  vel út með kartöflusprettu, enn betur en í fyrra segir  Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Þar á bæ er búið að taka upp um 50 tonn af kartöflum aðallega gullauga og  einnig rauðum íslenskum. Talsvert er um stórar kartöflur og er stærsta kartaflan sem komið hefur núna 372 gr. gullauga. Mestur vöxtur er venjulega í premíu bökunarkartöflum sem eru teknar upp síðastar á haustin. Uppskeran fer jafnóðum í sölu, kartöflurnar eru þvegnar og sendar daginn eftir til kaupenda í Reykjavík. Kartöflurnar sem núna fara í sölu eru óflokkaðar en þegar líður á haustið og híðið farið að þéttast eru þær flokkaðar í 3 flokka, smælki, meðal- og  svo stórar kartöflur. Sjö manns eru við kartöfluupptökuna á Seljavöllum.</description>
Flestar einbreiðu brýrnar frá Gýgju að Streiti
      <description>Hægt og bítandi fækkar einbreiðum brúm á hringveginum. Á leiðinni frá Reykjavík til Hornafjarðar eru ennþá  26 einbreiðar brýr, sú vestasta á Jökulsá á Sólheimasandi og á Hoffelsá austast  og 14 frá  Höfn að Streitishvarfi.  Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni segir að í hans umdæmi, sem nær frá Gýgjukvísl á Skeiðarársandi  að Streitishvarfi, séu 33 einbreiðar brýr og er það mun meira en er annarsstaðar á landinu. Reynir segir að ástæðan fyrir þessu er sú að á þessu svæði eru miklu fleiri og stærri vatnsföll en annarsstaðar og miklu dýrari brúarframkvæmdir. Hann telur líklegt að næst verði teknar fyrir brýrnar á Smyrlabjargará og Gljúfurá,  þær eru minnstar og líkur á að þær verði settar í hólka, en þetta skírist allt þegar ný vegaáætlun kemur í haust.</description>
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson kominn til starfa.
      <description>Sr. Fjölnir Ásbjörnsson sem ráðinn hefur verið til að leysa sr. Sigurð Kr. Sigurðsson sóknarprest á Hornafirði af í vetur er kominn til Hafnar  ásamt fjölskyldu sinni.
Hans fyrsta embættisverk verður að messa í Stafafellskirkju í Lóni næstkomandi sunnudag kl 14.00. Fjölnir hefur notað síðastliðna daga til að koma sér fyrir í prestbústaðnum á Hlíðartúni 18 og segist hann hlakka til að takast á við verkefni vetrarins.</description>
Nemendur Nesjaskóla taka upp kartöflur.
      <description>Nesjaskóli var settur úti undir berum himni í blíðskaparveðri í gær, mánudaginn 23. ágúst. Í vetur eru nemendur við skólann 95 í sex bekkjardeildum. Þar af eru 26 sem eru að hefja sína grunnskólagöngu. Skólastarfið mun verða með nokkuð hefðbundnum hætti þar sem lögð verður áhersla á að veita góða almenna menntun með áherslu á vellíðan nemenda í leik og starfi. Unnið verður áfram með verkefnið ,,heilsuskólinn” en markmið þess verkefnis er að efla líkamlegt- andlegt- og félagslegt heilbrigði allra í skólanum. Vinna með nýtt námsefni, ,,Stig af stigi” og stöðug vinna gegn einelti er mikilvægur þáttur í þessari heilsueflingu.
Nýir starfsmenn við skólann eru, Eva Lind Björnsdóttir, Guðný Böðvarsdóttir, og Signý Ingvadóttir sem allar eru stuðningsfulltrúar og Halldóra Guðmundsdóttir kennari.</description>
Lítil berjaspretta í Hornafirði
      <description>Mikið hefur verið rætt og ritað í helstu fjölmiðlum landsins um þá miklu berjasprettu sem væri um allt land. Staðreyndin er samt sú að á Austur og Suðaustur landi er lítið af  berjum samkvæmt heimildum berjafróðra manna. Til eru þó undantekningar  því eitthvað finnst í Suðursveit og á einstaka stað í Öræfum. Gönguhópur aldraðra á Hornafirði brá sér í berjaferð í landi Flateyjar á Mýrum  og lét vel yfir afrakstrinum
 “ Ég hef ekki séð það öllu svartara” sagði Helga Magnúsdóttir, ein úr hópnum, það var mjög mikið af krækiberjum þarna á aurunum en engin bláber og við vorum skotfljót að fylla ílátin.
Haft var samband við fólk á mörgum stöðum frá Hornafirði og austur um firði og allstaðar var sama svarið “Hér er ekkert af berjum,  hvorki krækiber eða bláber,” og ef einhver hafði fundið nokkur krækiber þá voru þau lítil  bæði  á  stærð og bragð.</description>
Búfénaður veldur skemmdum á Golfvellinum.
      <description>Búfénaður  hefur valdið skemmdum á golfvellinum í Silfurnesi einkum eru það kindur hafa sótt í svæði (grínin) sem búið er að sá í, étið nýgræðinginn og spyrnt upp jarðveginum. Guðný Helgadóttir í Golfklúbbi Hornafjarðar segir að daglega þurfi að reka kindur af vellinum en þær komi jafnharðan aftur. Guðný segist ekki vera fjárglögg  en telur að þetta séu alltaf sömu kindurnar. Síðast þegar smalað var af vellinum voru kindurnar settar í rétt sem er þar skammt frá og bæjaryfirvöldum og lögreglu tilkynnt það með beiðni um að sjá til þess að eigandi þeirra sækti þær. Kindur eru mikið við og á þjóðveginum rétt innan við Höfn og eins hafa þær gert sig heimakomnar í bænum.  Okkur er ekki ljúft að smala kindunum út á þjóðveginn þaðan sem þær koma því það getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir vegfarendur. Guðný segir að Golfklúbburinn hafi sent bæjarstjórn bréf þar sem þess er óskað að tekið verði á þessum málum um lausagöngu búfjár en ekki hafi borist neitt svar. Í bréfi Golfklúbbs Hornafjarðar kemur fram að ítrekað hefur þurft að reka sauðfé og hross af svæði félagsins og að miklar skemmdir hafi orðið á þeim svæðum sem nýlega var sáð í.</description>
Opna Hótel Hafnarmótið var um helgina
      <description>Opna Hótel Hafnarmótið í golfi var spilað  núna um helgina þ.e. Laugardag og Sunnudag, í blíðskaparveðri og Hornafjörður skartaði sínu fegursta. 
Úrslit mótsins urðu Þessi:
Konur með forgjöf:  
1 . sæti  Guðný Helgadóttir   	64 puntar
2. sæti Guðrún Júlía Jónsdóttir 	57 puntar
3. sæti Guðrún E. Þorsteinsdóttir	55 puntar
4. sæti Unnur Sæmundsdóttir	53 puntar
5. sæti Guðný Jensdóttir		47 puntar</description>
Áætlað að slátra  um 25 þúsund fjár í haust.
      <description>Stefnt er á að slátrun sauðfjár hjá sláturhúsinu á Höfn byrji 20. sept. Í haust er áætlað að slátrað verði þar um 25 þúsund fjár sem er aðeins minna en var síðasta haust. Ekki eru komnar neinar fastar tölur frá bændum um sláturfé, en Einar Karlsson sláturhússtjóri  á von á að fé komi af sama svæði og í fyrra þ.e eitthvað úr Vestur- kaftafellssýslu, af svæðinu hér og einnig eitthvað af svæðinu austur í Breiðdal. Ekki varð neitt af sumarslátrun þar sem ekki fengust nógu margir dilkar til að farið yrði á stað með slátrun. Undanfarin ár hafa nokkrir Bretar komið til vinnu í sláturhúsinu og verður svo einnig núna. Einar sláturhússtjóri er ekki bjartsýnn á að vel gangi að fá mannskap í sláturhúsið, ekki frekar en hjá Húsvíkingum  þar sem helmingur starfsfólksins eru útlendingar. Það er af sem áður var þegar fólk sóttist eftir að komast í vinnu í sláturhúsinu.</description>
Frumsýning myndarinnar Epíð
      <description>Kvikmyndin Epíð verður frumsýnd í Nýheimum Hornafirði á morgun, laugardag 21.ágúst kl. 20.00 og 22.00.
Mynd og handrit  er eftir Hornfirðingana Daníel Imsland og Hlyn Pálmason.
Efni myndarinnar er sótt í fornar sagnir um örlög og goðsagnir. Leikarar eru um 20 og í aðalhlutverkum eru Elvar Ágústsson og Óskar Guðjón Óskarsson einnig sjást þar margir aðrir þekktir Hornfirðingar. Myndin er tekin í nágrenni Hafnar og hafa  Daníel og Hlynur séð alfarið sjálfir um handrit, myndatökur og  alla gerð myndarinnar. Þeir félagar hafa lengi fengist við stuttmyndagerð, eða frá því að þeir voru smáguttar eins og þeir orða það og sl vetur komst stuttmynd eftir þá  í 16 liða úrslit hjá Popp Tíví  þar sem úrskurðað var um bestu myndina með SMS skilaboðum.</description>
Albert Eymundsson fær heiðursviðurkenningu.
      <description>Albert Eymundsson bæjarstjóri á Höfn var heiðraður fyrir störf sín  í þágu knattspyrnu á Íslandi og fór sú athöfn fram á Laugardalsvelli áður en leikur Íslands og Ítalíu hófst.
Alþjóða knattspyrnusambandið á 100 ára afmæli á þessu ári. Í tilefni þess, segir Eggert Magnússon formaður KSÍ.,  er verið að heiðra einn mann úr hverju aðildarlandi sambandsins, mann sem hefur þótt skara framúr í sambandi við uppbyggingu á knattspyrnu í sínu heimahéraði, grasrótarstarfi eins og við köllum það, hvort sem það er fyrir stráka, stúlkur,karla eða konur og fyrir að hafa verið einstaklega jákvæður alla tíð og tíma gagnvart knattspyrnustarfinu og þessari uppbyggingu hvað sem á hefur gengið. Okkur bar að velja einn einstakling á Íslandi sem við teldum eiga þetta skilið  og sá maður er Albert Eymundsson, sem okkur þykir vera algjör fyrirmynd um alla þessa hluti og okkur finnst prýða knattspyrnuforustumann. Hann hefur starfað á öllum þessum sviðum, verið leikmaður, þjálfari og forustumaður og kynnst þar öllum hliðum, allstaðar verið sama góðmennið, jákvæður út í alla hluti og alla staði og fyrirmynd annarra í öllum þessum störfum. Eggert segir það hafa verið sérstaklega ánægjulegt og gaman að geta heiðrað Albert fyrir framan 20 þúsund manns rúml. á íþróttavellinum sem allir klöppuðu honum lof í lófa.</description>
      <alt>Albert Eymundsson</alt>
Starfsemi kórsins hefst með upptöku á geisladisk.
      <description>Karlakórinn Jökull byrjar starfsemi sína snemma þetta árið en það er æfingar fyrir upptökur vegna útgáfu geisladisks. Upptaka fer fram  nú  snemma á haustdögum og mun Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) sjá um upptöku á þessum disk en hann sá einnig um upptöku á disknum</description>
Staða á Almannaskarði 16. ágúst
      <description>Gangagröftur hér í Almannaskarði gengur vel sem fyrr. Framvindan í síðustu viku var um 95 m og eru göngin orðin 563 m að lengd eða um 49% af heildarlengd. Þetta verður að teljast mjög gott þar sem hlé var gert eina vakt á miðvikudaginn vegna áhafnaskipta hjá Leonhard Nilsen.  Auk þess var um 4 klst stopp á laugardaginn vegna vélarbilunar. Fyrsta sökkulsteypan í vegskála að norðanverðu var steypt í gær, sunnudag. Alls voru steyptir 24 m af undirstöðu vinstra megin.</description>
Tilbúinn undir gerfigraslagningu.
      <description>Framkvæmdir við sparkvöllinn við Heppuskóla ganga vel og í lok þessarar viku  verður völlurinn tilbúinn undir gerfigraslagningu. Magnús Jónasson segir að stefnt hafi verið á að hafa allt tilbúið  20.ágúst, en ekki er ljóst hvenær það verður. Það eru erlendir aðilar sem sjá um graslagninguna og munu þeir leggja gerfigras á 40 sparkvelli víða um landið, aðallega á suð-vestur og norðurlandi.
Völlurinn er við hlið íþróttahússins og er rúmum meter lengri en húsið og mörkin eru 2 x 3 m, svokölluð handboltamörk. Girðing er allt í kring um völlinn og með því er verið að hugsa um að bæta sem best aðstöðuna fyrir yngri krakkana en völlurinn verður öllum opinn.</description>
Fjallagrös á Bandaríkjamarkað.
      <description>Það hefur viðrað vel til ferða á grasafjall undanfarið og ekki síður til að þurrka grösin þegar heim er komið. Heimir Þór Gíslason á Höfn, sem löngu er landsþekktur fyrir fjallagrasatínslu,  var í eina viku á Jökuldalsheiði um daginn og var afraksturinn eftir vikuna um 100 kg af fjallagrösum. 
Það er eitthvað sem tilheyrir síðsumardögum hér á Hornafirði að sjá Heimir Þór Gíslason breiða fjallagrös til þerris á kartöfluhúss-túninu, hræra í þeim með hrífunni og  taka saman þegar allt er orðið sprekþurrt. Grösin sem Heimir er að ganga frá núna eiga að fara til Bandaríkjanna, ef þau komast  þá í gegnum allt þetta kerfi, segir hann, það er svo mikil skriffinnska við þetta og m.a.þarf vottorð um að ekki leynist sprengja í grasapakningunni, Mér líst ekkert á að ég skuli þurfi vottorð frá löggildum embættismanni um að þetta innihaldi ekkert hættulegt, en svona verður þetta víst að vera segir Heimir.</description>
Skólastarf í FAS  að byrja.
      <description>Skólarnir eru flestir að byrja í næstu viku og í nógu að snúast einkum hjá þeim sem ætla í skóla utan heimabyggðar. FAS, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu
byrjar mánudaginn 23. ágúst og verður skólinn settur klukkan 11 og  að setningu lokinni er hádegisgrill í boði skólans.  Kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24.  Í gær, 17. ágúst voru um 110 nemendur skráðir í dagskóla og um 40 í kvöldskóla.  Við þá tölu eiga eftir að bætast fjarnemendur og  aðrir sem eru að taka einn og einn áfanga. Nemendur beint úr grunnskóla eru 29.   Námsframboð er fjölbreytilegt.  Hægt er að velja á milli 8 námsbrauta í dagskóla og tveggja í kvöldskóla.  Vinsælustu brautirnar eru félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut og almenn braut.  Kennarar í fullum stöðum verða þeir sömu og síðasta vetur en til viðbótar koma tveir nýir, einn í raungreinar og tungumál.  Auk þess verður einn stundakennari við skólann.  
Í vetur verður lögð áhersla á að efla félagslíf nemenda svo og ungmenna á aldrinum 16 til 25 ára.  Um er að ræða samvinnuverkefni margra aðila undir forystu Menningarmiðstöðvarinnar.</description>
Kammersveitin Ísafold á Hornafirði
      <description>Kammersveitin Ísafold skemmtir í Nýheimum á Höfn nk. föstudag kl 20.00 .
Þetta er í annað sinn sem Kammersveitin Ísafold sækir Hornfirðinga heim. Tónleikarnir fyrir ári síðan eru áheyrendum eftirminnilegir fyrir að vera kraftmiklir og gefandi eða eins og segir í gagnrýni Mbl. 23. ágúst 2003: “..allt leikið af stakri innlifun og hrífandi snerpu.”  Hljóðfærin sem þau leika á eru fiðlur, lágfiðla, knéfiðla, kontrabassi, flauta, óbó, klarinett, fagott, horn, trompet, básúna, harpa, píanó og slagverk. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Þar sem nær allir meðlimir Ísafoldar eru í námi erlendis er hljómsveitin aðeins starfandi á sumrin. Meðlimir hljómsveitarinnar í sumar, 2004, eru 18 talsins. 
Það er líka gaman að geta þess að Hljómsveitin Ísafold sá um undirleik á lagi Egils Jónssonar, Hornafjörður, fyrir Karlakórinn Jökul á væntanlegum disk þeirra í haust og karlakórinn mun syngja það lag með þeim á tónleikunum.</description>
Framkvæmdir við innsiglinguna að hefjast
      <description>Í sumar voru boðnar út framkvæmdir við dýpkun á innsiglingunni við Hornafjarðarós en engin tilboð bárust í verkið. Var þá leitað aðila til að taka verkið að sér og nú hafa samningar tekist við Gámaþjónustu Austurlands á Reyðarfirði sem  starfrækir sanddæluskip og verður skrifað undir verksamninginn í þessari viku.
Dæling hefst væntanlega í þessum mánuði segir Helgi Már Pálsson verkfræðingur  og munu þessar framkvæmdir standa yfir út september. Ætlunin er að grafa niður á níu metra dýpi í innsiglingarleiðina um grynnslin utan við ósinn og verður rennan 70 metra breið. Hryggurinn sem þarna hefur myndast og  þarf að fjarlægja  úr siglingarleiðinni liggur um 300 metra út og austan Hvanneyjar til suðausturs. Efnið sem upp kemur verður losað utan við innsiglinguna þar sem straumar bera það burt.</description>
Innritun í Tónskólann að hefjast.
      <description>Starfsemi Tónskólans á Hornafirði er að hefjast og verða nýir nemendur innritaðir í skólann nk. föstudag, laugardag og mánudag. Í tónskólanum verða u.þ.b. 110 nemendur í einkatímum og 70 nemendur í forskóla. Við tónskólann starfa 10 kennarar og eru það allt sömu kennararnir og í fyrra.  Kennt verður í Sindrabæ, Nesjaskóla, Hrollaugsstöðum og Hofgarði. Reiknað er með að hægt verði að bæta inn um 20 nýnemum á þetta skólaár. Skólinn kennir á tré- og málmblásturshljóðfæri, píanó og hljómborð, harmónikku, klassískan og raf gítar,  raf bassa og trommur. Einnig eru kenndar bóklegar greinar eins og tónfræði og tónheyrn. 25 manna lúðrasveit er starfrækt við skólann og stefnir hún að því að fara á lúðrasveitamót skólalúðrasveita sem haldinn verður í Grafarvogi  5.-7. nóvember n.k. Einnig æfa nemendur í fjölbreyttum samspilshópum eins og  pop og jass-hljómsveitum og 3ja upp í 5 manna hópa. Tónskóli A-Skaft. hefur staðið að 15 tónleikum á ári auk þess sem nemendur hafa komið víðsvegar fram í bænum.  Stefnt er að því að kennsla hefjist miðvikud. 25. ágúst.</description>
Sigrún Ósk ók Toyota Prius hinginn á einum tanki
      <description>Það sem fáir áttu von á að væri mögulegt hefur tekist.  Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Íslandsmeistari í sparakstri og sjónvarpskona, ók hringveginn á Toyota Prius án þess að taka bensín á leiðinni.  Tankurinn var fylltur við upphaf ferðar í Reykjavík á miðvikudag og síðan var hringvegurinn ekinn á tveimur dögum.  Meðaleyðslan í ferðinni var lengst af 3,7 – 3,9  l á 100 km.  Á lokasprettinum þegar ljóst var að hringnum yrði lokað á einum tanki var hraðinn aukinn upp í leyfilegan hámarkahraða á þjóðvegum og niðurstaðan varð því sú að meðaleyðsla í ferðinni var 4 lítrar á 100 km.</description>
Allir dagar verða jafnlangir
      <description>Í hitabylgjunni sem gengur yfir landið þessa daga er fátt sem minnir á að haustið sé í aðsigi og skólarnir að fara að hefjast. Í skólunum eru hjólin þó farin að snúast, stjórnendur vel á veg komnir með skipulagningu og kennarar farnir að undirbúa sig.  Í dag hefst námskeið á vegum skólskrifstofunnar sem heitir Umsjónarkennarinn en það er eins og nafnið bendir til fyrst og fremst ætlað umsjónarkennurum.  Skólasetning verður síðan mánudaginn 23. ágúst. Skólastarf verður með hefðbundnu sniði en þó breytast tímasetningar á stundaskrám lítilega, þannig að allir dagar vikunnar verða jafnlangir.  Í Hafnarskóla verður unnið að ákveðnu þróunarverkefni sem nefnist Aðstoðarkennarinn.  Þetta verkefni felst í því að við skólann munu starfa tveir kennarar sem fyrst og fremst sjá um stuðning inn í bekkjum og við litla hópa.</description>
Þessu væri vel hægt að venjast
      <description>Enn bætist við einn hitadagurinn til viðbótar og er misjafnt hvað mönnum finnst, sumir kvarta yfir því að þetta sé einum of mikið og svo eru það hinir sem dásama veðrið og fullyrða að þessu sé auðveldlega hægt að venjast og vona að þetta haldist sem lengst. Þessa dagana selja verslanir og söluskálar mikið af svaladrykkjum og ís sem er nauðsynlegt til að kæla sig niður. Hvert sem litið er þá virðast allir njóta blíðunnar, iðnaðarmenn sem koma því við taka útiverkin og láta inni vinnuna bíða þar til veður verður ekki eins gott.</description>