Ágúst
Gólfvöllur í Silfurnesi
Gólfvöllur í Silfurnesi

31.08.2004 Ágúst

Kvennamót hjá Gólfklúbbi Hornafjarðar

Sunnudaginn 12. september heldur Golfklúbbur Hornafjarðar sérstakt kvennamót og er það sérstakur liður í að kynna golfíþróttina fyrir konum og félagsskapinn sem golfinu fylgir. Í vor voru haldin námskeið jafnt fyrir karla og konur og voru konur mun fjölmennari. Nokkrar hafa greinilega fengið "bakteríuna" en við viljum auðvitað sjá enn fleiri konur og á vellinum segir Anna Halldórsdóttir hjá golfklúbbinum.
Í dag eru tæplega 100 manns skráðir í klúbbinn, þar af um 20 konur. Golfíþróttin er ágætis fjölskylduíþrótt, nokkrir unglingar eru í klúbbnum og standa sig mjög vel. Það er samt athyglisvert að stelpur eru lítið að spila og skorum við á þær að kynna sér þessa íþrótt. Til að upplýsa þá sem hafa áhuga á að byrja í golfinu þá eru byrjunaráhöldin 1 -2 kylfur og einn pútter. Anna bendir á að mikið sé til af golfáhöldum á Höfn og því ekki ósennilegt að hægt sé að leita til kunningjanna um lán á áhöldum til að byrja með, það er bara að koma sér á stað og fá golf-bakteríuna í sig. Stefnt er að sérstöku unglinganámskeiði næsta vor.

Þær konur sem eru að byrja þurfa ekki að greiða félagsgjöld fyrsta sumarið svo sem var hjá þeim konum sem sóttu námskeiðið í vor. Þó karlmenn séu fleiri en konur í klúbbnum þá hafa þær yfirhöndina í stjórninni, þar sem þær eru þrjár en karlar tveir. Formaður er Guðný Helgadóttir og Anna Halldórsdóttir gjaldkeri. Ferðafólk og aðrið gestir hafa mætt vel á völlinn í sumar og fáum við oft hrós fyrir vel hirtan völl og fallegt útsýni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica