Ágúst
Allmannaskarðsgöng séð að norðan
Allmannaskarðsgöng séð að norðan

30.08.2004 Ágúst

Almannaskarðsgöng lengdust um 104 m sl.viku

Gangagröfturinn gekk mjög vel í síðustu viku og afköst vikunnar voru 104 m.
Þessi afköst eru í raun með ólíkindum því bergið var mjög leiðinlegt mest alla vikuna
og mikið þurfti að styrkja með ásprautun og bergboltum (10-15 m3 af steypu og 20-30
bergboltar í hverja sprengifæru). Þetta er mesta heildarframleiðsla sem nokkurn tíma hefur náðst í sprengdum göngum á landinu. Göngin eru nú orðin 757 m að lengd að sunnan plús 5 m að norðan - samtals 762 m eða
66,3% af heildarlengd.

Unnið var að undirbúningi fyrstu steypufæru í yfirbyggingu vegskála að norðanverðu.
Samkvæmt áætlun eiga göngin að verða tilbúin í júní á næsta ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica