Ágúst
Brynja með vínberin
Brynja með vínberin

30.08.2004 Ágúst

Ræktar vínber í sólstofunni.

Þó kvartað sé yfir lélegri kræki-og bláberjasprettu er ekki sömu sögu að segja hvað rifsber og sólber snertir, þar er mikill vöxtur. Brynja Hannesdóttir í Grænahrauni segir að uppskera sól- og rifsberja sé mjög góð, t.d. fékk hún um 18 kg af rifsberjum af þrem plöntum og vöxtur sólberjanna var enn betri en rifsberjanna. Brynja hefur í mörg ár ræktað vínber í sólstofunni hjá sér og fær um 20 kg af vínberjum á hverju hausti og þegar best lætur hefur hún fengið allt upp í 26 kg. Vínberin eru ekki orðin fullþroskuð en útlit er fyrir góða vínberjauppskeru með haustinu. Brynja er ekki ein um berin því skógarþrestir gera sig heimakomna í garðinum og sólstofunni. Það er kapphlaup við skógarþrestina um að ná í berin, þeir vita vel af vínberjunum hér í sólstofunni, þeir troða sér inn um gluggana og allsstaðar þar sem smuga finnst og ég hef ekki við að reka þá út. Hún setti net yfir tvær rifsberjaplöntur og ætlaði að lofa þeim að hafa eina plöntu að tína af, en ekki þóknaðist þeim það heldu tróðu sér undir netið til að ná í berin sem þar voru.
Brynja býr til hlaup úr berjunum og einnig njóta vinir og vandamenn góðs af góðri uppskeru.

Eins og flestir vita eru berjahlaup og sultur hreinasta sælgæti og hér áður fyrr var það metnaður hjá húsmæðrum að eiga nóg til vetrarins af margskonar sultu og berjasafti.
Nú er öldin önnur og við förum bara út í búð og kaupum það sem nota skal.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica