Ágúst
Á myndinni eru, Íris, Guðný Diljá, Brynja Sóley, Svanhvít Helga og Kristín Ragna. Mynd: Eyrún Halla Jónsdóttir
Á myndinni eru, Íris, Guðný Diljá, Brynja Sóley, Svanhvít Helga og Kristín Ragna. Mynd: Eyrún Halla Jónsdóttir

30.08.2004 Ágúst

Skólabörn í Hofgarði fá heitan mat í hádeginu.

Skólinn í Hofgarði í Öræfum er fámennasti skólinn í Sveitarfélaginu Hornafirði a.m.k. í byrjun skólaárs. Skólinn var settur fyrir viku og er skólastarf að komast í sinn fasta farveg. Við höfðum samband við Pálínu Þorsteinsdóttur skólastjóra í Hofgarði og spurðum hana hvernig skólastarfið gengi fyrir sig í svona fámennum skóla: ,,Skólinn okkar er samkennsluskóli og við kennum frá kl. 9 – 15 alla virka daga, en yngstu börnin fara þó heim um hádegið á föstudögum. Kennarar eru þrír og að auki einn starfsmaður leikskólans.
Við skiptum börnunum í eldri og yngri deild, eða öðruvísi hópa eftir því hvernig samsetning í aldri er og eftir verkefnum. Við reynum að finna út hverju sinni hverjum hentar best að vinna saman eða í einrúmi og hvernig styrkleikar hvers og eins fái best notið sín, þannig að þetta er einstaklingsmiðað nám. Kennarar skipta sér á þessa vinnu, og einnig þar er tekið mið af styrkleika hvers kennara, þannig að þeir taki að sér mismunandi námsgreinar. Stundum eru líka allir saman” segir Pálína.

Í grunnskólanum eru börn í 1. -7. bekk og einnig er starfrækt leikskóladeild 3 daga í viku.
Nemendur eru með fæsta móti eins og er þar sem dálítil hreyfing hefur verið á fólki í Öræfum í haust þannig að nokkrir nemendur eru ýmist að flytja eða eru fjarverandi tímabundið.
Pálína segir að félagslífið mótist mjög af samsetningu hópsins, sem er mismunandi eftir tímabilum. T.d eru stundum flestir í yngri deild.og svo þegar þau börn eldast verða kanski flestir í eldri deild o.s.frv. Kynjahlutfall er mjög mismunandi og oft vantar börn í árganga. Það verður því að reyna að virkja áhugasvið þeirra sem eru í skólanum hverju sinni. En við gerum okkur margt til gamans í daglegu starfi, t.d. að fara í stuttar ferðir út frá skólanum, grípum í spil og tafl, horfum saman á myndbönd og höfum stundum skemmtikvöld í skólanum í einhverju formi. Við höldum þorrablót með þátttöku sveitunganna og árshátíð er fastur liður í mars. Þá flytja börnin dagskrá sem þau hafa æft og eru allir með hlutverk.

Við kennum handavinnu eða textilment eins og það er kallað, segir Pálína, en við höfum ekki öfluga smíðakennslu dags daglega. Við höfum hinsvegar leyst það með því að fá smíðakennarann á Höfn til okkar einu sinni á vetri og þá er smíðað samfellt á meðan hann er, einn til tvo daga. Það hefur lukkast afar vel og það er ótrúlega mikið sem börnin afkasta þegar allur skólinn hellir sér í þetta verkefni, og óhætt er að segja að þá ríki vinnugleði.
Leikfimi er kennd í sal skólans þó hann sé ekki sértilbúinn sem íþróttasalur og þegar vel viðrar er oft útileikfimi. Fótboltinn hefur verið vinsæll og er góð aðstaða að stunda hann á útivelli. Við förum í berjaferðir og oft aðrar gönguferðir á haustin, segir Pálína, og þegar eitthvað sérstakt er gaman að skoða í umhverfinu efnum við gjarnan til vettvangsferða.
Svo höfum við ráðskonu hér í skólanum sem sér um heita máltíð í hádeginu því við teljum það mjög mikilvægt fyrir börnin.

Af þessu má sjá að það ríkir enginn lognmolla í skólanum í Hofgarði og að fámenni hindrar ekki fjölbreitni í skólalífinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica