Ágúst
Hrollaugsstaðarskóli í fögru umhverfi
Hrollaugsstaðarskóli í fögru umhverfi

27.08.2004 Ágúst

Níu nemendur í Hrollaugsstaðarskóla

Nemendur og kennarar Hrollaugsstaðaskóla eru mættir í skólann til starfa á þessu hausti. Í skólanum í vetur eru 9 nemendur á aldrinum 5 - 12 ára og kennarar eru tveir. Fyrstu dagarnir eru notaðir til aðlögunar þar sem námið fer fram utandyra eftir því sem aðstæður leyfa segir Þorbjörg Arnórsdótir skólastjóri. Farið er til berja, hreyfing stunduð, farið í sund og jafnvel fjallgöngu. Í gær fimmtudag fórum við í Öræfin að heimsækja skólann þar og á eftir var farið saman í sund í Flosalaug og var ferðin öll mjög skemmtileg. Nú á haustdögum á að nota tímann til að rannsaka plöntur og læra um blómin í haganum, jafnvel skreppa til berja smástund og njóta áfram þessa góða sumars, þrátt fyrir að skólinn sé byrjaður.Síðan á að vinna þemaverkefni um blóm og reyna þannig að flytja sumarið með sér inn í haustið og veturinn.

Í vetur á að þróa skólastarfið í þá átt að námið verði einstaklingsmiðað, auka á valverkefni og setja upp námshvetjandi kerfi þar sem nemendur og kennarar skrá afrakstur vinnunnar. Vonandi reynist það okkur vel og við hlökkum til vetrarstarfsins segir Þorbjörg.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica