Sögustundir 3-6 ára barna að hefjast aftur.
Nú þegar haustar og dimmir kemur sá tími að yngri börnin eru meira inni og njóta þess að heyra sögur og jafnframt ágætt að hvíla þau aðeins frá sjónvarpinu. Undanfarna vetur hefur Menningarmiðstöðin verið með sögustundir fyrir börn einkum þau yngri og hafa þessar stundir verið vinsælar og vel þegnar. Nú er sögustundin að byrja aftur öflugri og skemmtilegri en nokkru sinni.
Á bókasafninu í Menningarmiðstöðinni er góð aðstaða fyrir börn á öllum aldri og margt í boði. Á fimmtudögum í vetur eru börn á aldrinum 3 – 6 ára sérstaklega velkomin, því þá er í boði notaleg, fróðleg og umfram allt skemmtileg sögustund í umsjón Ragnhildar Guðmundsdóttur.
Fyrsta sögustundin á þessu hausti verður 2. september klukkan 14 -14.30. Aðgangur er ókeypis.





Skrifa athugasemd