Ágúst
Gestur Halldórsson og Torfi Ásgeirsson við bikarinn sem geymir nöfn þeirra sem fengið hafa 13 rétta
Gestur Halldórsson og Torfi Ásgeirsson við bikarinn sem geymir nöfn þeirra sem fengið hafa 13 rétta

27.08.2004 Ágúst

Blómlegt getraunastarf hjá Sindra.

Getraunastarf Sindra hefur verið blómlegt, farið fram úr björtustu vonum segir Gestur Halldórsson sem sér um Tippstofu Sindra. Í gærkvöldi heimsótti Torfi Ásgeirsson frá Reykjavík Sindra, hélt fyrirlestur um getraunir og kenndi þeim á Vingetto getraunaforritið.
Torfi sagði að með notkun forritsins væri hægt að spara mikla peninga og fá meiri skemmtun af getrauninni því auðvitað sé markmiðið, að hafa gaman að þessu.
Megin kost segir hann vera, að hér sé sölukerfið fyrir ungmennafélagið Sindra og það styrki félagið sú þátttaka sem hér fari fram. Sindri er með þeim hæðstu af landsbyggðinni og þeir fjölmennustu þ.e. mestur fjöldi einstaklinga og jafnvel þó Reykjavík væri talin með. Þetta sýnir hvað þið eruð miklu þroskaðri en aðrir, bætti Torfi við og brosti.
Sindri hefur verulegar tekjur af sölu getraunaraða, 38 % sölulaun ef tippað er hjá okkur á tippstofunni segir Gestur, annars bara 12% svo það munar miklu fyrir okkur að þeir sem tippa komi til okkar á Hafnarbraut 25.

Það eru alltaf einhverjir leikir í gangi hjá okkur segir Gestur, 28.ágúst hefst næsti leikur okkar þar sem Víkin gefur jólahlaðborð fyrir tvo í 1. verðlaun. Krónuleikurinn hefst svo 4.sept., það er vinsæll leikur þar sem tippað er fyrir 10 kr. hver röð og þú mátt tippa eins margar raðir og þú vilt og besta röðin gildir. Hæsti vinningur sem komið hefur hér er 1.300.000 kr. og svo hafa komið margir smærri vinningar 40 -100 þús. Frá 1998 tíu manns verið með alla 13 rétta og eru nöfn þeirra skráð á verðlaunabikar.
Gestur vill hvetja menn og konur til að koma til þeirra og tippa og ekki vera feimin, endilega koma og prufa , við aðstoðum alla sem það vilja segir hann.
Og þá er bara að drífa sig á tippstofuna á laugardaginn, freista gæfunnar og um leið að styrkja unglingana okkar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica