Ágúst
Hof í Öræfum
Hof í Öræfum

26.08.2004 Ágúst

Öræfin ehf kaupa Vesturhús á Hofi

Nýr ferðaþjónustustaður verður opnaður í Vesturhúsi á Hofi í Öræfum á næsta ári.. Það er fyrirtækið Öræfin ehf sem að þessu stendur og eru það eigendur þess Guðjón Marteinsson og Einar Torfi Finnsson ásamt fjölskyldum þeirra sem keypt hafa Vesturhús. Þeir félagar hafa báðir starfað mikið í ferðaþjónustu og þekkja vel svæðið, Guðjón er leiðsögumaður og Einar Torfi er með Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum.
Við stefnum á að byrja í febrúar og ætlum að hafa opið allt árið segir Guðjón.

Þarna verður svefnpokagisting fyrir a.m.k 20 manns, góð eldunaraðstaða og gott borðpláss til að matast við hvort sem er fyrir hópa eða einstaklinga. Algengast er með þessa ferðahópa að þeir hafi allan mat með sér og þá hentar svona aðstaða vel.
Guðjón telur mikla möguleika á aukinni ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði og td.þegar þetta svæði er borið saman önnur svæði á landinu ætti að vera auðvelt að stýra fólki hingað. Hér er fallegasta sveit á landinu, mikil og góð þjónusta, veðurfar gott allt árið og því ætti að vera auðvelt að beina fólki hingað því hér eru tækifærin.

Ef allt gengur eins og á er stefnt segir Guðjón er vel hugsanlegt að fjölskyldurnar flytji í Hornafjörðinn, þetta er allt spurning um afkomu möguleikana og hann er bjartsýnn á framtíð ferðaþjónustunnar í Vesturhúsi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica