Ágúst
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson prestur í Hafnar og Bjarnanessókn næsta ár
Sr. Fjölnir Ásbjörnsson prestur í Hafnar og Bjarnanessókn næsta ár

25.08.2004 Ágúst

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson kominn til starfa.

Sr. Fjölnir Ásbjörnsson sem ráðinn hefur verið til að leysa sr. Sigurð Kr. Sigurðsson sóknarprest á Hornafirði af í vetur er kominn til Hafnar ásamt fjölskyldu sinni.
Hans fyrsta embættisverk verður að messa í Stafafellskirkju í Lóni næstkomandi sunnudag kl 14.00. Fjölnir hefur notað síðastliðna daga til að koma sér fyrir í prestbústaðnum á Hlíðartúni 18 og segist hann hlakka til að takast á við verkefni vetrarins.
Fjölnir er kvæntur Heiðrúnu Tryggvadóttur kennara og hefur hún hafið störf við Hafnarskóla. Þau eiga tvo drengi, Tryggva sem er 4 ára og Egil 2 ára. Báðir drengirnir eru byrjaðir í leikskóla og eru hæðst ánægðir. Fjölnir segir það mjög jákvætt hversu vel hafi gengið að fá leikskólapláss fyrir drengina og segir að það hafi komið þeim á óvart hversu hátt þjónustustig sé hér á Hornafirði, hér er öll þjónusta til staðar, og eins hvað hér er margt fólk. Við komum hingað í fyrsta sinn í sumar og stönsuðum hálfan dag segir Fjölnir, við þekkjum mjög lítið til þessa landsvæðis þar sem við höfum mest haldið okkur fyrir norðan, á Ísafirði og Sauðárkróki.
Mér finnst afskaplega fallegt hér og hlakka til að skoða og kynnast staðnum og umhverfinu.

Fjölnir lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki 1993 og guðfræðinámi vorið 2000 en auk þess hefur hann einnig stundað fjarnám við kennaraháskólann. Hann tók prestvígslu 2002 til afleysingarþjónustu á Sauðárkróki en síðastliðið ár hefur hann starfað í Vestmannaeyjum og kemur beint þaðan til þjónustu í Hafnar- og Bjarnanessóknum

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica