Nemendur Nesjaskóla taka upp kartöflur.
Nesjaskóli var settur úti undir berum himni í blíðskaparveðri í gær, mánudaginn 23. ágúst. Í vetur eru nemendur við skólann 95 í sex bekkjardeildum. Þar af eru 26 sem eru að hefja sína grunnskólagöngu. Skólastarfið mun verða með nokkuð hefðbundnum hætti þar sem lögð verður áhersla á að veita góða almenna menntun með áherslu á vellíðan nemenda í leik og starfi. Unnið verður áfram með verkefnið ,,heilsuskólinn” en markmið þess verkefnis er að efla líkamlegt- andlegt- og félagslegt heilbrigði allra í skólanum. Vinna með nýtt námsefni, ,,Stig af stigi” og stöðug vinna gegn einelti er mikilvægur þáttur í þessari heilsueflingu.
Nýir starfsmenn við skólann eru, Eva Lind Björnsdóttir, Guðný Böðvarsdóttir, og Signý Ingvadóttir sem allar eru stuðningsfulltrúar og Halldóra Guðmundsdóttir kennari.
Á vordögum, í tengslum við umhverfisdag settu nemendur Nesjaskóla niður kartöflur í kartöflugarði skólans. Í dag, þriðjudag hefur góða veðrið verið notað til að taka upp kartöflur og er uppskeran með ágætum. Nemendur fara heim með sinn hlut og geta boðið heimilisfólki sínu upp á nýuppteknar kartöflur með kvöldmatnum.





Skrifa athugasemd