Ágúst
Úr myndasafninu. Í sláturhúsréttinni
Úr myndasafninu. Í sláturhúsréttinni

22.08.2004 Ágúst

Áætlað að slátra um 25 þúsund fjár í haust.

Stefnt er á að slátrun sauðfjár hjá sláturhúsinu á Höfn byrji 20. sept. Í haust er áætlað að slátrað verði þar um 25 þúsund fjár sem er aðeins minna en var síðasta haust. Ekki eru komnar neinar fastar tölur frá bændum um sláturfé, en Einar Karlsson sláturhússtjóri á von á að fé komi af sama svæði og í fyrra þ.e eitthvað úr Vestur- kaftafellssýslu, af svæðinu hér og einnig eitthvað af svæðinu austur í Breiðdal. Ekki varð neitt af sumarslátrun þar sem ekki fengust nógu margir dilkar til að farið yrði á stað með slátrun. Undanfarin ár hafa nokkrir Bretar komið til vinnu í sláturhúsinu og verður svo einnig núna. Einar sláturhússtjóri er ekki bjartsýnn á að vel gangi að fá mannskap í sláturhúsið, ekki frekar en hjá Húsvíkingum þar sem helmingur starfsfólksins eru útlendingar. Það er af sem áður var þegar fólk sóttist eftir að komast í vinnu í sláturhúsinu.

Slátursala verður eins og verið hefur og Einar vill benda fólki á að gera sláturkaupin tímanlega þar sem ekki er víst að sala verði út sláturtíðina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica