Ágúst
Stórmyndin Epíð
Stórmyndin Epíð [úr myndasafni]

20.08.2004 Ágúst

Frumsýning myndarinnar Epíð

Kvikmyndin Epíð verður frumsýnd í Nýheimum Hornafirði á morgun, laugardag 21.ágúst kl. 20.00 og 22.00.
Mynd og handrit er eftir Hornfirðingana Daníel Imsland og Hlyn Pálmason.
Efni myndarinnar er sótt í fornar sagnir um örlög og goðsagnir. Leikarar eru um 20 og í aðalhlutverkum eru Elvar Ágústsson og Óskar Guðjón Óskarsson einnig sjást þar margir aðrir þekktir Hornfirðingar. Myndin er tekin í nágrenni Hafnar og hafa Daníel og Hlynur séð alfarið sjálfir um handrit, myndatökur og alla gerð myndarinnar. Þeir félagar hafa lengi fengist við stuttmyndagerð, eða frá því að þeir voru smáguttar eins og þeir orða það og sl vetur komst stuttmynd eftir þá í 16 liða úrslit hjá Popp Tíví þar sem úrskurðað var um bestu myndina með SMS skilaboðum.

Rétt er að geta þess að atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. Ekki er búið að velja efni í handrit fyrir næstu mynd þeirra félaga en vel mætti ætla að hún yrði á rómantísku nótunum. Báðir ætla þeir Hlynur og Daníel að nema kvikmyndagerð í framtíðinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica