Ágúst
Karlakórinn Jökull í Mánagarði
Karlakórinn Jökull í Mánagarði

19.08.2004 Ágúst

Starfsemi kórsins hefst með upptöku á geisladisk.

Karlakórinn Jökull byrjar starfsemi sína snemma þetta árið en það er æfingar fyrir upptökur vegna útgáfu geisladisks. Upptaka fer fram nú snemma á haustdögum og mun Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) sjá um upptöku á þessum disk en hann sá einnig um upptöku á disknum "Í jökklanna skjóli" Það verður tekin í þetta ein helgi og munu upptökur fara fram hér á Höfn. Til að svona geisladiskur verið að veruleika þurfa allir kórmenn að leggja mikið á sig og mikið mun mæða á stjórnanda kórsins Jóhann Morávek og undirleikaranum Guðlaugu Hestnes. Lagið Hornafjörður sem hefur verið fyrsta lag kórsins á tónleikum og fyrir nokkrum árum þá útsetti Jóhann Morávek lagið fyrir Sinfoniuhljómsveit Íslands, Jóhann hefur nú endurútsett lagið og hefur það þegar verið tekið upp fyrir geisladiskinn en það var Kammersveitin Ísafold sá um þann flutning.

Flutningurinn er frábær og útsetningin hjá Jóhanni er hrífandi. Karlakórinn Jökull og Kammersveitin Ísafold munu frumflytja þessa útsetningu af laginu Hornafjörður eftir Egil Jónsson við texta Þorvarðar Stefánssonar og hvetjum við alla til að mæta í Nýheima nk. föstudag kl. 20.00

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica