Ágúst
Allmannaskarðsgöng séð að norðan
Allmannaskarðsgöng séð að norðan

19.08.2004 Ágúst

Staða á Almannaskarði 16. ágúst

Gangagröftur hér í Almannaskarði gengur vel sem fyrr. Framvindan í síðustu viku var um 95 m og eru göngin orðin 563 m að lengd eða um 49% af heildarlengd. Þetta verður að teljast mjög gott þar sem hlé var gert eina vakt á miðvikudaginn vegna áhafnaskipta hjá Leonhard Nilsen. Auk þess var um 4 klst stopp á laugardaginn vegna vélarbilunar. Fyrsta sökkulsteypan í vegskála að norðanverðu var steypt í gær, sunnudag. Alls voru steyptir 24 m af undirstöðu vinstra megin.

Samtals eru hér að störfum rúmlega 30 manns auk þeirra norðmanna sem eru
heima í fríi - um 10-12 manns.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica