Ágúst
Framkvæmdir við nýja sparkvöllinn
Framkvæmdir við nýja sparkvöllinn

19.08.2004 Ágúst

Tilbúinn undir gerfigraslagningu.

Framkvæmdir við sparkvöllinn við Heppuskóla ganga vel og í lok þessarar viku verður völlurinn tilbúinn undir gerfigraslagningu. Magnús Jónasson segir að stefnt hafi verið á að hafa allt tilbúið 20.ágúst, en ekki er ljóst hvenær það verður. Það eru erlendir aðilar sem sjá um graslagninguna og munu þeir leggja gerfigras á 40 sparkvelli víða um landið, aðallega á suð-vestur og norðurlandi.
Völlurinn er við hlið íþróttahússins og er rúmum meter lengri en húsið og mörkin eru 2 x 3 m, svokölluð handboltamörk. Girðing er allt í kring um völlinn og með því er verið að hugsa um að bæta sem best aðstöðuna fyrir yngri krakkana en völlurinn verður öllum opinn.

Sparkvellirnir eru liður í átaki til að fá börn og ungmenni til að hreyfa sig meira og vellirnir skapa vettvang sem er bæði skemmtilegur og öruggur. Opin grassvæði hafa verið á undanhaldi og víða hefur malbik og steypa komið í staðinn fyrir gömlu sparkvellina sem lengi höfðu þjónað sínum tilgangi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica