Fjallagrös á Bandaríkjamarkað.
Það hefur viðrað vel til ferða á grasafjall undanfarið og ekki síður til að þurrka grösin þegar heim er komið. Heimir Þór Gíslason á Höfn, sem löngu er landsþekktur fyrir fjallagrasatínslu, var í eina viku á Jökuldalsheiði um daginn og var afraksturinn eftir vikuna um 100 kg af fjallagrösum.
Það er eitthvað sem tilheyrir síðsumardögum hér á Hornafirði að sjá Heimir Þór Gíslason breiða fjallagrös til þerris á kartöfluhúss-túninu, hræra í þeim með hrífunni og taka saman þegar allt er orðið sprekþurrt. Grösin sem Heimir er að ganga frá núna eiga að fara til Bandaríkjanna, ef þau komast þá í gegnum allt þetta kerfi, segir hann, það er svo mikil skriffinnska við þetta og m.a.þarf vottorð um að ekki leynist sprengja í grasapakningunni, Mér líst ekkert á að ég skuli þurfi vottorð frá löggildum embættismanni um að þetta innihaldi ekkert hættulegt, en svona verður þetta víst að vera segir Heimir.
Mikil vinna er við grösin áður en þau eru sett í neytenda umbúðir, fyrst eru þau grófhreinsuð á rist síðan sett í vatn og þá sökkva grösin en ruslið flýtur ofan á.
Þegar allt rusl hefur verið fjarlægt eru grösin breidd á plast og þurrkuð úti og nægir einn góður þurrkdagur til að grösin verði sprekþurr. Fyrir Bandaríkjamarkað eru grösin sett í 5 kg. pakningar.
Heimir segir að margir fari á grasafjall og hægt sé að finna fjallagrös um allt land og þau sé að finna víða um heim t.d. á Spáni, Júgóslavíu, Síberír og mörgum fleiri stöðum og eru allsstaðar eftirsótt enda bæði bráðholl og góð fæða.





Skrifa athugasemd