Ágúst
Hornafjarðarós séð út á Ginnslin
Hornafjarðarós séð út á Ginnslin

17.08.2004 Ágúst

Framkvæmdir við innsiglinguna að hefjast

Í sumar voru boðnar út framkvæmdir við dýpkun á innsiglingunni við Hornafjarðarós en engin tilboð bárust í verkið. Var þá leitað aðila til að taka verkið að sér og nú hafa samningar tekist við Gámaþjónustu Austurlands á Reyðarfirði sem starfrækir sanddæluskip og verður skrifað undir verksamninginn í þessari viku.
Dæling hefst væntanlega í þessum mánuði segir Helgi Már Pálsson verkfræðingur og munu þessar framkvæmdir standa yfir út september. Ætlunin er að grafa niður á níu metra dýpi í innsiglingarleiðina um grynnslin utan við ósinn og verður rennan 70 metra breið. Hryggurinn sem þarna hefur myndast og þarf að fjarlægja úr siglingarleiðinni liggur um 300 metra út og austan Hvanneyjar til suðausturs. Efnið sem upp kemur verður losað utan við innsiglinguna þar sem straumar bera það burt.

Takmarkið er að ná níu metra dýpi í innsiglinguna utan við ósinn og þá er greið leið inn að bryggju þannig að flest loðnuskipin komast inn. Verið er að setja stálþil við Krosseyjarbryggju og ganga þær framkvæmdir vel. Þar verður dælt með dæluprammanum Soffíu niður á níu metra dýpi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica