Ágúst
Nemendur Tónskólans að spila í Hornabæ
Nemendur Tónskólans að spila í Hornabæ

16.08.2004 Ágúst

Innritun í Tónskólann að hefjast.

Starfsemi Tónskólans á Hornafirði er að hefjast og verða nýir nemendur innritaðir í skólann nk. föstudag, laugardag og mánudag. Í tónskólanum verða u.þ.b. 110 nemendur í einkatímum og 70 nemendur í forskóla. Við tónskólann starfa 10 kennarar og eru það allt sömu kennararnir og í fyrra. Kennt verður í Sindrabæ, Nesjaskóla, Hrollaugsstöðum og Hofgarði. Reiknað er með að hægt verði að bæta inn um 20 nýnemum á þetta skólaár. Skólinn kennir á tré- og málmblásturshljóðfæri, píanó og hljómborð, harmónikku, klassískan og raf gítar, raf bassa og trommur. Einnig eru kenndar bóklegar greinar eins og tónfræði og tónheyrn. 25 manna lúðrasveit er starfrækt við skólann og stefnir hún að því að fara á lúðrasveitamót skólalúðrasveita sem haldinn verður í Grafarvogi 5.-7. nóvember n.k. Einnig æfa nemendur í fjölbreyttum samspilshópum eins og pop og jass-hljómsveitum og 3ja upp í 5 manna hópa. Tónskóli A-Skaft. hefur staðið að 15 tónleikum á ári auk þess sem nemendur hafa komið víðsvegar fram í bænum. Stefnt er að því að kennsla hefjist miðvikud. 25. ágúst.

Við síðustu kjarasamninga var samþykkt að lengja í áföngum skólaár tónlistarskólanna á landinu til jafns við grunnskólanna. Er það nú að fullu komið í gildi. Einnig hafa orðið stórar breytingar á námsstefnu, námsskrá og prófafyrirkomulag tónlistarskólanna. Það hefur tekið nokkur ár að koma því við og má reikna með 2-3 árum enn áður en þær breytingar komast á að fullu
Mikil aðsókn hefur verið að skólanum og því þurfa þeir sem verið hafa á biðlista eftir að komast inn í skólann að endurnýja umsókn sína. Jóhann Moravek skólastjóri segir að þeir nemendur sem voru í skólanum síðasta ár og skiluðu inn umsókn í vor, þurfi ekki að sækja aftur um skólavist en framhaldsskólanemendur þurfa að skila inn ljósriti af sinni stundatöflu.
Einnig verður hægt að fá umsóknareyðublöð í grunnskólunum Hornafjarðar og bendir Jóhann á að þeir sem stundi nám við útibú tónskólans á Hrollaugsstöðum og Hofgarði skili umsóknum sínum til kennara þar í skólunum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica