Ágúst
Sigrún Ósk ók Toyota Prius hinginn á einum tanki
Fréttatilkynning
Það sem fáir áttu von á að væri mögulegt hefur tekist. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Íslandsmeistari í sparakstri og sjónvarpskona, ók hringveginn á Toyota Prius án þess að taka bensín á leiðinni. Tankurinn var fylltur við upphaf ferðar í Reykjavík á miðvikudag og síðan var hringvegurinn ekinn á tveimur dögum. Meðaleyðslan í ferðinni var lengst af 3,7 – 3,9 l á 100 km. Á lokasprettinum þegar ljóst var að hringnum yrði lokað á einum tanki var hraðinn aukinn upp í leyfilegan hámarkahraða á þjóðvegum og niðurstaðan varð því sú að meðaleyðsla í ferðinni var 4 lítrar á 100 km.
Sigrún Ósk hefur því enn á ný sannað hæfileika sína undir stýri.





Skrifa athugasemd