Allir dagar verða jafnlangir
Í hitabylgjunni sem gengur yfir landið þessa daga er fátt sem minnir á að haustið sé í aðsigi og skólarnir að fara að hefjast. Í skólunum eru hjólin þó farin að snúast, stjórnendur vel á veg komnir með skipulagningu og kennarar farnir að undirbúa sig. Í dag hefst námskeið á vegum skólskrifstofunnar sem heitir Umsjónarkennarinn en það er eins og nafnið bendir til fyrst og fremst ætlað umsjónarkennurum. Skólasetning verður síðan mánudaginn 23. ágúst. Skólastarf verður með hefðbundnu sniði en þó breytast tímasetningar á stundaskrám lítilega, þannig að allir dagar vikunnar verða jafnlangir. Í Hafnarskóla verður unnið að ákveðnu þróunarverkefni sem nefnist Aðstoðarkennarinn. Þetta verkefni felst í því að við skólann munu starfa tveir kennarar sem fyrst og fremst sjá um stuðning inn í bekkjum og við litla hópa.
Svipuð vinna hefur verið tekinn upp víða og markmiðið er allstaðar það sama þ.e. að koma betur til móts við þarfir hvers einstaklings fyrir sig. Í vetur verður aðstoðarkennarinn það þróunarstarf sem megin áhersla verður lögð á en auk þess verður unnið með hópkennslu, jafningjstuðning kennara ásamt fleiru.




Skrifa athugasemd