Ágúst
Þessu væri vel hægt að venjast
Enn bætist við einn hitadagurinn til viðbótar og er misjafnt hvað mönnum finnst, sumir kvarta yfir því að þetta sé einum of mikið og svo eru það hinir sem dásama veðrið og fullyrða að þessu sé auðveldlega hægt að venjast og vona að þetta haldist sem lengst. Þessa dagana selja verslanir og söluskálar mikið af svaladrykkjum og ís sem er nauðsynlegt til að kæla sig niður. Hvert sem litið er þá virðast allir njóta blíðunnar, iðnaðarmenn sem koma því við taka útiverkin og láta inni vinnuna bíða þar til veður verður ekki eins gott.
Á Leikskólanum Lönguhólum var búið að setja upp litla útisundlaug til að krakkarnir gætu buslað í blíðunni.





Skrifa athugasemd