Ágúst
Handverksmaðurinn Ragnar Arason
Handverksmaðurinn Ragnar Arason
Handverksmaðurinn Ragnar Arason er einn af þeim sem er skapandi í ríki Vatnajökuls. (úr myndasafni).

12.08.2004 Ágúst

Tók þátt í Handverkssýningunni á Hrafnagili

Í síðustu viku lauk Handverkssýningunni á Hrafnagili í Eyjafirði. Sextíu aðilar sem komu víða af landinu tóku þátt í sýningunni og voru það bæði einstaklingar og fyrirtæki og þar á meðal eitt fyrirtæki frá Hornafirði sem var Rennismíði Ragnars. Það er Ragnars Arason, oft kenndur við Borg á Mýrum sem bak við það fyrirtæki. Ragnar sýndi þar fjölbreytt úrval af allskonar munum renndum úr tré. Ekki var auðvelt að ná sambandi við Ragnar þegar fréttamaður vefsins kom á sýninguna því mikið var að gera hjá honum, en konan hans, Helga Magnúsdóttir, sagði að það væri búið að vera alveg óskaplega gaman að taka þátt í þessari sýningu. Margir Hornfirðingar lögðu leið sína í Hrafnagil og skoðuðu sýninguna og sumir héldu svo til Dalvíkur til að taka þátt í Fiskiveislunni miklu.

Þetta var í tólfta sinn sem handverkssýning er haldið að Hrafnagili og að þessu sinni var Málmur þema sýningarinnar. Árið 2005 verður þema sýningarinnar Hafið og árið 2006 verður það Kornið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica