Ágúst
Dugnaðurinn ræður ríkjum í skólagörðunum (úr myndasafni)
Dugnaðurinn ræður ríkjum í skólagörðunum (úr myndasafni)

10.08.2004 Ágúst

Rækta grænmeti og garðávexti í skólagörðunum

Vöxtur á grænmeti og garðávöxtum í skólagörðunum er hreint frábær, miklu meiri en var í fyrra sumar segir Sigurborg Jóna Björnsdóttir umsjónarmaður skólagarðanna á Höfn. Um tuttugu krakkar eru með reiti í skólagörðunum í sumar þar sem þau rækta kartöflur, grænkál, blómkál, brokkolí, gulrófur o.fl. Krakkarnir eru eitthvað farin að taka upp og fara hreykin heim með sýnishorn af uppskerunni. Það eru krakkar úr öðrum til sjöunda bekk sem eru með garða og eru stelpurnar þar í meirihluta. Sigurborg segir dálítið misjafnt hvað krakkarnir hugsi vel um garðana sína og þeir sem hafa verið duglegir að vökva, reita arfa og hugsa vel um garðinn þeir fái meiri uppskeru.

Uppskeruhátíð skólagarðanna verður fimmtudaginn 19. ágúst, þá verður grillað og gert eitthvað skemmtilegt. Auk umsjónar með skólagörðunum hefur Sigurborg verið í bæjarvinnunni í sumar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica