Ágúst
Húsbílarnir staddir við Jökulsárlón
Húsbílarnir staddir við Jökulsárlón

10.08.2004 Ágúst

105 húsbílar gistu í Skálafelli

Gott sumar og gott útlit með haustið segir ferðaþjónustubóndinn Þorsteinn Sigfússon á Skálafelli í Suðursveit. Hann segir að sl. júnímánuður hafi verið mikið betri en í fyrra, í júlí hefur allt verið fullbókað eins og var síðasta sumar og fullbókað er fram yfir 20.ágúst. Við höfum hér gistipláss í uppbúnum rúmum fyrir tuttugu og fimm manns og rekum við okkar þjónustu í samvinnu við Ferðaþjónustu bænda. Um 90% þeirra gesta sem koma hingað eru útlendingar. Húsbílaklúbburinn sem kom með Norrönu síðast, alls 105 bílar voru á Skálafelli um helgina. Þeir voru hér austan við Kolgrímu við Langahraun og voru mjög ánægðir með staðinn, nóg pláss og þægilegt að vera á sandinum sagði Þorsteinn. Það eru samtök húsbílaklúbba á Norðurlöndum sem að þessari ferð standa ásamt nokkrum þátttakendum frá Hollandi, Belgíu og Þýskalandi og er ferðin skipulögð af íslendingum sem eru meðlimir í þessum samtökum. Byrjað var að skipuleggja ferðina í fyrrahaust og einnig mun Smyril Line standa að þessu. Nokkrir úr hópnum ( 6-7) fóru norðurleiðina frá Seyðisfirði, þeir höfðu frétt að þeir gætu áð hvar sem væri á Íslandi og, samkvæmt grein í dönsku blaði, lagt sínum húsbílum hvar sem þeim dytti í hug.

Þetta er langfjölmennasti húsbílahópurinn sem komið hefur til landsins og er þegar farið að skrá þátttakendur í ferð hingað til lands næsta sumar og eru komnir um 50 á þann lista segir Þorsteinn. Meðan hópurinn hafði viðdvöl hér fóru flestir með jeppum og rútu uppá Skálafellsjökul, aðrir fóru í reiðtúr með Þorsteini, en hann hefur verið að prófa sig áfram með að bjóða upp á hestaferðir um nágrennið.
Norðmennirnir í hópnum höfðu orð á því að matvaran á Íslandi væri bara ódýrari en í Noregi en ekki fylgdi sögunni hvað hinum fannst um verðlagið hjá okkur.
Eftir helgina héldu húsbílarnir áfram leiðina suður um land og þegar þeir nálgast Reykjavík munu íslenskir húsbílaeigendur taka vel á móti þeim og bjóða til grillveislu að góðum íslenskum sið. Hópurinn dvelur hér á landi í þrjár vikur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica