Yfirburðarsigur hjá Sindraskvísunum
Meistaraflokkur kvenna, Sindraskvísurnar kepptu við Hött frá Egilsstöðum á Sindravelli í dag og að sjálfsögðu sigruðu þær Hött með yfirburðum eins og þeim einum er lagið, voru stöðugt í sókn og lögðu Hött af velli með 6-0. Markaskorarar voru Jóna Benný 3 mörk, Guðrún Ása 2 mörk og Lena 1 mark. Þess má geta að Sindraskvísurnar eiga þrjú efstu sætin yfir markaskorara í deildinni, Jóna Benný er þar á toppnum með 12 mörk í 7 leikjum, Soffía 6 mörk og Valdís ósk með 5. Þetta var síðasti leikurinn í riðlakeppninni hjá þeim og þá er bara úrslitakeppnin eftir. Fyrsti leikurinn verður 17. ágúst n.k. og munu þær keppa við Keflavík, einn heimaleik og annan úti. Það er ljóst að það mun verða mjög hörð keppni, því líkt og Sindraskvísurnar þá hafa Keflvíkingarnir unnið alla sína leiki með yfirburðarmarkastöðu.
Annar flokkur karla keppti við ÍBV á Sindravöllum í dag og sigraði ÍBV 3-2. Gísli Freyr skoraði bæði mörkin fyrir Sindra. Leikurinn var nokkuð jafn og skoruðu Sindramenn fyrsta markið.





Skrifa athugasemd