Ætlar að hlaupa upp Almannskarðið syngjandi
Næstkomandi mánudag ætlar 4.flokkur kvenna ásamt þjálfara sínum Mica að hlaupa frá Höfn og að Jökulsárbrú í Lóni. Lagt verður af stað frá Ráðhúsinu kl.13:00. Leiðin er 36 km löng og er áætlað að það hlaupið taki þrjá klukkutíma. Hlaup þetta er til að safna fjármagni með áheitum og styrkja með því ferð 4. flokks kvenna á úrslitakeppni sem fer fram á Akureyri helgina 20. og 21. ágúst n.k. Eins og áður hefur komir fram þá er 4. flokkur kvenna orðnar Austurlandsmeistarar og því er bara eftir að keppa um Íslandsmeistaratitilinn. Það er ósk þjálfara og aðsendanda stúlknanna að fyrirtæki sem verða beðin um að styrkja stúlkurnar taki vel á móti þeim. Undanfarið hafa þær verið á ströngum æfingum sem meðal annars hefur verið mikið hlaup til að undirbúa þær fyrir hlaupið upp í Lón.
Þar sem Almannaskarðið verður erfiðasti hlutinn ætlar þjálfari stúlknanna Mica að hlaupa þann áfanga og segist ætla að gera það syngjandi.





Skrifa athugasemd