Ágúst
Magús og Guðmundur staddir í endurbættri aðstöðu
Magús og Guðmundur staddir í endurbættri aðstöðu

06.08.2004 Ágúst

Nýtt og glæsilegt húsnæði fyrir verk-og listgreinar

Kennarar eru byrjaðir að huga að sínum vetrarstörfum og undirbúningi fyrir skólastarfið. Um 140 nemendur verða í Heppuskóla á Höfn í vetur og er það nokkrum fleiri en þar voru í fyrra. Guðmundur Ingi Sigbjörnsson skólastjóri Heppuskóla segir að fullmannað sé í kennarastöður við skólann. Þetta er nánast allt heimafólk, fólk með réttindi og hefur kennt við skólann. Í fyrra voru nokkrir kennarar okkar, konur, í barnseignarfríi (þetta gekk eins og faraldur), en þær eru nú að koma aftur til starfa. Helstu breytingar í Heppuskóla eru að nú flytjum við í nýtt og glæsilegt húsnæði með verk-og listgreinar okkar. Þetta nýja húsnæði er um 300 fermetra pláss í vöruhúsi Kask sem nú er fullfrágengið sem kennslustofur, mjög skemmtileg og góð aðstaða.
Við fáum nýja kennslustofu fyrir náttúrufræðigreinar þar sem smíðahúsið var áður.

Ekki var hægt að sinna smíðakennslu í skólanum sl vetur vegna aðstöðuleysis en Guðmundur segir að nú fái allir bekkir Heppuskóla sínar valgreinar hvort sem það er smíði eða textilment, sem hét nú bara handavinna í gamla daga og það fer allt í nýja plássið í vöruhúsinu. Kennsla byrjar í Heppuskóla 23. ágúst.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica