Undirbúningsnefnd um Náttúrustofu Suðausturlands
Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt fram lögð drög að erindisbréfi undirbúningsnefndar um náttúrustofu á Suðausturlandi. Umhverfisráðherra lét þau orð falla fyrir nokkru síðan að næsta svæði þar sem náttúrustofa yrði opnuð væri suðausturland og er það ástæða þess að þessi undirbúningshópur hefur verið settur á laggirnar. Hlutverk hópsins er m.a. að skoða hvort tengja megi starfsemi náttúrustofu starfsemi annarra stofnana á svæðinu s.s. Háskólasetrinu og Jöklasýningu. Nú eru 6 náttúrustofur starfræktar á landinu og eru þær: Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Austurlands, Náttúrustofa Vestfjarða, Náttúrustofa Vesturlands, Náttúrustofa Norðurlands vestra og Náttúrustofa Reykjaness. Ráðherra er heimilt að leyfa starfrækslu allt að átta náttúrustofa er starfa á vegum sveitarfélaga óháð kjördæmaskipan og skal um hverja stofu gera samning milli ráðherra og þeirra sveitarfélaga sem standa að náttúrustofu.
Helstu hlutverk náttúrustofu eru:
-Að safna gögnum, varðveita heimildir um náttúrufar og stunda vísindalegar náttúrurannsóknir einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar.
-Að stuðla að æskilegri landnýtingu og náttúruvernd og veita fræðslu um umhverfismál, náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga.
-Að veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofnunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar samkvæmt ákvörðun náttúrustofu hverju sinni.
-Að veita ráðgjöf, sinna rannsóknum og sjá um vöktun gegn greiðslu á verksviði stofunnar að beiðni sveitarfélaga, ríkis eða stofnana þeirra, einstaklinga, fyrirtækja eða annarra aðila.
-Að annast almennt eftirlit með náttúru landsins einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar.
Forstöðumaður náttúrustofu skal hafa háskólapróf í náttúrufræði eða þekkingu sem meta má til jafns við það.





Skrifa athugasemd