Ágúst
Framkvæmdir við Almannaskarð @BAH
Framkvæmdir við Almannaskarð @BAH

05.08.2004 Ágúst

Íslandsmet í Almannaskarði

Verktakinn við jarðgangagerðina í Almannaskarði, Leonhard Nilsen og Sönner frá Noregi og Hérðasverk ehf, komu galvaskir aftur til starfa miðvikudaginn 28. júlí eftir tveggja vikna sumarhlé. Þá voru göngin 299 m að lengd að sunnanverðu. Nú í dag, miðvikudaginn 4. ágúst, eru göngin hins vegar orðin 405 m að lengd og hafa því lengst um 106 m á einni viku. Hér er um glæsilegt Íslandsmet að ræða í tvíbreiðum veggöngum. Sprengt var 21 sinni í vikunni og lengdust göngin því um 5 m í hverri sprengingu að jafnaði. Þrátt fyrir þessi miklu afköst í metrum talið þá var bergið ekkert sérstaklega gott og þurfti að sprauta steypu á nánast hverja sprengifæru (5-7 m3 í hvert sinn). Auk þess voru settir upp 8-12 bergboltar í hverja sprengifæru til að styrkja bergið.

Fyrri metafköst í tvíbreiðum veggöngum (eða sprengdum göngum af sambærilegri stærð) voru um 80 m á viku hjá Ístak í Hvalfjarðargöngum og Fáskrúðsfjarðargöngum og hjá Impreglio í aðgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Hér er því um verulega metbætingu að ræða hjá verktökunum í Almannaskarði. Nú er því búið að sprengja um 35 % af heildarlengd jarðganganna sem verða 1.150 m að lengd. Einnig hefur verið unnið við að steypa þrifalög undir vegskálann að norðan, samsetningu móta og járnabindingu og annan undirbúning fyrir skálabygginguna.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica