Ágúst
Cardaklija, starfsmaður Bygginvarvörudeildar KASK
Cardaklija, starfsmaður Bygginvarvörudeildar KASK

04.08.2004 Ágúst

Mikil pallasmíði í sumar

Hornfirðingar hafa verið dugleigir að nota veðurblíðuna í sumar til byggingaframkvæmda, byggt sólpalla, garðhús, málað hús sín og sitthvað fleira. Í járnvörudeild Kask fengust þær upplýsingar að mest hefði aukist sala á pallaefni og væri sala á því miklu meiri en síðasta sumar, um helmingi meira hefur verið selt af málningu og eins hefur mikið aukist sala á byggingarefni. Miklar framkvæmdir hafa verið og eru framundan við byggingu sumarbústaða víða í sveitarfélaginu, stækkun á þeim eða aðrar breytingar.

Unglingarnir í vinnuskólanum og umsjónarmenn þeirra eiga heiður skilið fyrir hvað þau hafa séð vel um að halda bænum hreinum og prýða hann með blómum, gróðursetningu og nýjum þöku-lögðum svæðum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica