Um helgina veiddust 18 laxar og er stærðin frá 5 til 12 pund
Það gengur vel núna þegar veiðifært er, í dag er vatnið í Laxá í Nesjum búið að vera kolmórautt eftir þessa miklu rigningu segir Guðjón Pétur Jónsson framkvæmdastjóri. Vegna þurrkanna í sumar var áin svo vatnslítil að laxinn komst ekkert upp ána og beið bara í bunkum, því vorum við afskaplega hamingjusamir yfir rigningunni þegar hún loksins kom og dönsuðum stríðsdans, vorum orðnir þreyttir á regndansinum sem skilaði svo litlu.
Guðjón segir að vel hafi gengið að selja laxveiðileyfin og nánast öll séu þau uppseld og flest til útlendinga. Um helgina veiddust 18 laxar og er stærðin frá 5 til 12 pund. Flestir útlendingarnir sleppa laxinum aftur, þetta er bara til að fá útrás fyrir veiðieðlið en ekki til að drepa. Veiðitímabilið í Laxá er frá 10. júlí til 1.október, veiðidagar eru um 80 og stangardagar 160, eins og það heitir á laxveiðimáli. Veiðileyfi yfir besta veiðitímann, sem er í ágúst, kosta 19 þúsund kr. fyrir stöngina og er þá innifalin gisting og veiði í 12 tíma. Laxveiðifélagið leigir hús í Nesjahverfi til afnota fyrir laxveiðimennina.
Algengt er að þeir útlendingar sem koma séu tvo daga að veiða í Laxá og fari svo í Breiðdalsá. Við erum í samstarfi við þá í Breiðdal, þeir eru með veiðiþjónustu og m.a. selja þeir veiðileyfin fyrir okkur segir Guðjón. Við settum 30 þúsund seiði í Laxá í vor, 20 þús. í fyrra og 10 þús.seiði árið 2002. Um 90 % af laxaseiðunum skilar sér í ána eftir eitt ár og er þá orðinn 5-7 punda laxar. Hin 10 prósentin koma eftir tvö ár og eru þá orðin að stór-löxum. Guðjón segir að Laxá sé komin á kort laxveiðimanna, aðstaða og veiði góð og veiðimennirnir ánægðir. Þetta er það sem til þarf.





Skrifa athugasemd