Hornafjörður toppaði aðra staði á landinu í úrkomumagni
Miklar rigningar hafa verið á Suðausturlandi síðasta sólarhringinn og vatnsföll orðin sjó-mikil. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni segir að ekki hafi neinar stórskemmdir orðið á vegum en víða hafi runnið úr vegköntum og full ástæða sé fyrir ökumenn að gæta varúðar. Aurskriða féll í Þvottárskriður um kl. 4 síðustu nótt og önnur um kl 8 í morgun. Búið var að hreinsa af veginum um kl 9.30 en Jón segir að haldi áfram að rigna séu líkur á að fleiri aurskriður geti komið. Skriðurnar sem koma í Þvottárskriðum koma úr þröngu gili þannig að ekki riðst mikið magn af aur og möl í einu á veginn og því er auðvelt fyrir vegfarendur að varast þær a.m.k. meðan dagsbirta er. Í gær var úrkoman í Akurnesi 65 millimetrar frá kl.18 í gær til 9 í morgun sem var toppurinn á landinu en meðal rigning er 15–25 millimetrar.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru veðurhorfur til kl.18 á morgun: Hæg suðaustlæg átt og rigning eða súld í fyrstu, en snýst síðan í suðvestan 3-8 með skúrum, fyrst vestan Öræfa. Fremur hæg suðlæg átt á morgun og skýjað með köflum, en stöku skúrir vestantil. Hiti 11 til 16 stig.





Skrifa athugasemd