Erik Nelson afhjúpaði minnismerkið 1954
Árið 1954 var ákveðið að minnast þess að 30 ár væru liðin frá að Erik Nelson flaug fyrstur manna til Íslands og var ákveðið að Flugmálafélag Íslands beitti sér fyrir því að reistur væri minnisvarði á Hornafirði til minningar um þessi merku tímamót í flugsögu Íslands. Jafnframt var unnið að því Nelson gæti verið viðstaddur er minnismerkið yrði afhjúpað. Allt gekk þetta eftir og Flugfélag Íslands flutti steindranginn austur og var honum valinn staður við flugbrautina á Melatanga. Mánudaginn 2.ágúst lenti Snæfaxi flugvél Flugfélags Íslands með marga framámenn flugmála, Þórhall Daníelsson fyrrum kaupmann á Höfn, sem tók á móti Nelson á Höfn fyrir 30 árum, og þar kom einnig flugkappinn og heiðursgesturinn Nelson. Athöfnin á flugvellinum var látlaus og byrjaði með ávarpi forseta Flugmálafélags Íslands, Jóns Eyþórssonar og í lokin sneri Jón máli sínu til fulltrúa Hafnarkauptúns og þakkaði Hornfirðingum fyrir virðulegar móttökur og þá ágætu aðstoð sem þeir hefðu veitt og sagði “ Hafnarbúum og héraðsmönnum öllum fel ég þennan minnisvarða til varðveislu í framtíðinni”. Að loknum ávörpum var Nelson beðinn að afhjúpa minnisvarðann sem á var letrað: Erik Nelson flaug fyrstur til Íslands 2.ágúst 1924.
Nelson flutti stutta ræðu og var auðsýnilega hrærður. Hann lýsti ánægju sinni yfir að hafa átt þess kost að vera þarna viðstaddur og sagði “fyrir hönd allra sem að þessu flugi stóðu þakka ég þann heiður sem okkur hefur verið veittur með því að reisa þennan óbrotgjarna minnisvarða, þar sem nú er flughöfn Hornfirðinga”
Eftir athöfnina var farið í land til Hafnar þar sem sveitarstjórnin bauð til ríkulegrar kaffiveislu
Eftir að flugvöllurinn var fluttur af Melatanga var minnisvarðinn fluttur þaðan og settur við Hótel Höfn. Erik Nelson lést 9. maí 1970 í Honolulu, 81 árs og er hann jarðaður í Santa Monika í Kaliforníu, þaðan sem hnattflugmennirnir lögðu fyrst af stað til Seattle.
Heimildir: Tímaritið Flug og Anna Þórhallsdóttir
Mynd: Saga Hafnar í Hornafirði





Skrifa athugasemd