Ágúst
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2004
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2004
Flugeldasýning Jökulsárlóni (úr myndasafni)

01.08.2004 Ágúst

Magnaðasta flugeldasýning til þessa

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni fór fram í gærkvöldi að viðstöddu um 800 manns sem kom víða að. Veður var upp á sitt besta og var Jökulsárlónið upptendrað af stórum kertum sem búið var að dreifa vítt og breitt um lónið sem gaf umhverfinu ævintýrablæ. Á lóninu mátti heyra Zodiac bátana þeytast um er verið var að leggja síðustu hönd á sýninguna. Það var mikil eftirvænting í loftinu og víða máttu heyra lýsingar þeirra sem höfðu séð sýninguna á síðasta ári. Rétt um hálftíma eftir miðnætti þegar myrkrið hafði skollið á varð allt í einu mikil kyrrð sem var síðan var röfin með miklum hvellum og það birti yfir lóninu, sýningin var hafin. Í hálftíma mátti líta augum ljósadýrð sem myndaðist við samspil jökla og flugeldanna sem sprungu víða um lónið sem voru hver öðrum öflugri.

Sýningin endaði síðan á blysfossi sem kom neðan úr Jökulsárbrúnni. Þrátt fyrir mikinn bílafjölda þá gekk umferðin mjög vel fyrir sig og allir komust til síns heima án vandræða.

Sjá myndasafn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica