Ríki Vatnajökuls - Júlí
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Einstakur hljómburður við Vötn í Lóni
      <description>Það var margt um manninn upp við Vötn í Stafafellsfjöllum seinnipartinn í dag en þar voru haldnir tónleikar í þessari einstöku náttúruperlu. Veðrið var upp á sitt besta, sól á himni og vatnið spegilslétt. Þessir tónleikar eru hluti af skipulagðri útivistar- og tónlistardagskrá sem þeir bræður í Stafafelli í Lóni halda nú um helgina. Þegar búið var að setja upp svið á vatnsbakkanum sem lá út í vatnið,  tengja hátalarana og gera allt klárt til tónleikahaldsins tók Bogomil Font hljóðnemann og kynnti tónleikana. Rödd hans ómaði í fjöllunum og þegar byrjað spila mátti heyra að þessi staður hefur alveg einstakan hjómburð.</description>
      <alt>Flytjendur</alt>
Öddi Þorbjörns skattakóngur Austurlands
      <description>Örn Þór Þorbjörnsson fyrrverandi skipstjóri og núverandi auðkýfingur er skattakóngur Austurlands. Hann greiðir tæpar 32 milljónir í opinber gjöld. Öddi sem er nýkominn úr útreið með Ingimar á Jaðri og Guðmundi Jónssyni þar sem þeir fór vítt og breitt um sveitarfélagið segist vera stoltur af því að fá að greiða svona mikið, hefði þó viðjað vera nær Björgólfi í upphæð. Örn ætlar að dvelja á sumarsetrinu sínu í Stafafellsfjöllum með konunni um Verslunarmannahelgina og taka þátt í hátíðarhöldunum sem þar verða og um leið halda upp á skattakóngstitillinn. Örn segist ætla að skjóta upp mikið af flugeldum á laugardagskvöldinu, miklu meira “flugeldasjó” en hjá Einari Birni á Jökulsárlóninu.</description>
Margir leggja leið sína á Hótel Vatnajökul
      <description>Hótel Vatnajökull sem er hluti af Fosshótelkeðjunni hefur nú verið opið síðan í maí og má segja að það sé fullbókað allt sumarið. Að sögn Þorgils Þorgilssonar hótelstjóra þá er mikill straumur af fólk sem leggur leið sína á hótelið, ekki bara til að gista heldur fara á veitingarstaðinn sem er á hótelinu og njóta útsýnisins sem staðurinn bíður upp á, bæði erlendir og íslenskir ferðamenn. Þetta er fyrsta árið sem Þorgils rekur hótelið og er matreiðslumeistarinn hjá honum Matthew McGuigan sem kemur frá Bandaríkjunum. Þorgils segir Matthew matreiðslusnilling sem eldar af mikilli list, bæði Íslenska þjóðarrétti sem erlenda með dyggri aðstoð Sigrúnar Huld sem sér um það að Íslenskir réttir fari fram á Íslenska vegu.</description>
80 ár liðin frá fyrsta fluginu til Íslands
      <description>Þótt reglulegar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Hornafjarðar kæmust ekki á fyrr en eftir 1940 kom það öðru hvoru fyrir að flugvélar hefðu viðkomu á Hornafirði fyrir þann tíma. Eftirminnilegasta heimsóknin af þessu tagi, og reyndar sú fyrsta er á efa lending tveggja flugvéla úr bandaríska flughernum um árið 1924. Þann 6.apríl sama ár hófu fjórar flugvélag sig á loft frá Seattle í Washington-fylki og var förinni heitið umhverfis jörðina. Vélarnar voru af gerðinni Doglas, 12 metra langar með 16 metra vænghaf og vógu rúm fjögur tonn fulllestaðar. Tveir menn voru í hverri flugvél: flugmaður og vélamaður. Í fyrsta áfanga ferðarinnar var flogið til Alaska en þar hlekktist einni vélinni á og heltist hún úr lestinni. Flugvélarnar þrjár sem eftir voru héldu hnattflugi sínu áfram til Kirkwall á Orkneyjum. Þar dvöldu flugmennirnir í nokkra daga áður en haldið var út yfir Atlandshafið til Hornafjarðar. Þegar hér var komið sögu voru liðnir um þrír og hálfur mánuður frá því að flugsveitin lagði af stað frá Seattle og höfðu flugmennirnir upplifað ýmiss konar hremmingar á leiðinni.</description>
4-flokkur kvenna Austurlandsmeistarar
      <description>Þessi vika hefur mjög sigursæl í flestum flokkum Sindra, 4 flokkur kvenna hélt á Neskaupsstað þar sem þær sigruðu stelpurnar í Þrótti 2-1og tryggðu sér þar með sigur í Austurlandsriðlinum og fara í úrslit Íslandsmótsins. Þróttarar komust yfir í leiknum en mörk frá Brynju Rut og Hebu Björk tryggðu þeim sigurinn. Stelpurnar eru komnar með 21 stig úr 7 leikjum sem er fullt hús stiga og auk þess 31 mark í plús. Þær eiga enn einn leik eftir gegn Huginn á Seyðisfirði en úrslit þess leikar breytir ekki stöðu þeirra í riðlinum. Úrslitakeppnin fer fram fyrir Norðan, annað hvort á Húsavík eða Akureyri. Í næstu ætla stelpurnar að fara í maraþonhlaup frá Höfn upp í Lón ásamt þjálfara sínum Miralem Haseta og tilgangur hlaupsins að safna áheitum til að standa straum að kostnaði við úrslitakeppni.</description>
Spáð í veðrið um Verslunarmannahelgina
      <description>Nú þegar líður að Verslunarmannahelgi fara menn að spá í veðrið, hvar verður sólin. Margir ferðalangar hafa þegar tekið stefnuna á ákveðna staði þar sem verða hátíðarhöld um helgina burt séð frá því hvaða veðri veðurguðirnir ætla að úthluta, fyrir aðra skiptir veðrið meira máli en staðurinn og elta því sólina og hitann. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni  þá verða hér suðlægar áttir og milt veður, getur orðið vætusamt smá skúrir eða súld og hiti 10-15 stig.</description>
Pakkhúsið vinsæll staður til að líta við
      <description>Góð aðsókn hefur verið í Pakkhúsið á Höfn í sumar en þar er sjóminjasafn og  Handraðinn til húsa. Handraðinn er félag handverksfólks í Hornafirði og þar er fjölbreytt úrval muna til sölu svo sem ullar og prjónavörur, smíðagripir, slípaðir steinar og steinstyttur, renndar trévörur, leirvörur, málverk, bútasaumur, hlutir unnir úr flóka og m.fl.
Umsjónarkonur í Handraðanum í sumar eru Herdís Tryggvadóttir og Sigrún Ingólfsdóttir og segir Herdís að sala sé meiri í sumar en var í fyrra og það eru Ítalir sem mest kaupa af þeim. Það eru fjölda margir sem koma bara til að skoða bæði safnið og íslenska handavinnu. Pakkhúsið er opið frá kl. 13–18 og  20–22 fram að miðjum ágúst eftir það verður opið frá kl 13–18 til 31.ágúst.</description>
Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum
      <description>Hornfirðingurinn Árni Sigurbergsson frá Svínafelli í Nesjum starfaði sem flugmaður í 50 ár hjá íslensku flugfélögunum Flugfélagi Íslands og Loftleiðum á áætlunarleiðum félaganna  bæði innanlands og í millilandaflugi, hann er nú hættur sökum aldurs. Árni kom fyrir stuttu á sinni einkaflugvél til Hornafjarðar þar sem fréttamaður vefsins hitti hann á flugvellinum. Flugvélina smíðaði Árni sjálfur og tók smíðin sjö ár. “Ég byrjaði á smíðinni árið 1992 og lauk henni 1999 en þá átti eftir að kaupa mótorinn og setja vélina saman og það tók langan tíma líklega alls 3-4000 tíma í heildina" segir Árni. Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum og svo þurfti að fá gott pláss til að setja hana saman og fyrsta flugið á henni var 2.júlí 2002. Tegundarheiti flugvélarinnar er Van’s RV-6 lágþekja 2.ja manna, þyngd 1080 pund, hámarksþyngd 1650 pund með eldsneyti, tveim mönnum og farangri. Hún tekur 38 gallon af bensíni og flugþol er 4½  klst. reiknað er með 300 metra flugbraut en getur komist af með 100-200 metra.</description>
Skipulögð dagskrá í Stafafelli um Verslunarmannahelgina
      <description>Um Verslunarmannahelgina verður skipulögð útivistar- og tónlistardagskrá að Stafafelli í Lóni. Fagnað verður opnun glæsilegrar göngubrúar (95m) við Eskifell og opnun gönguleiðar frá Víðidal um Kollumúla og Eskifell til byggðar. Á laugardagsmorgni verður ekið inn að hinni nýbyggðu göngubrú og farið kl. 10:00 í tveggja klukkutíma gönguferð um Eskifell. Á hádegi á laugardag verður lagt af stað í um þriggja tíma göngu um Austurskóga í Smiðjunes.  Á sunnudegi verður gengið frá Smiðjunesi kl. 10:00 upp að Melrakkafelli, ofan í Hvannagil þar sem litir eru  fjölbreyttir og gilið sérlega fallegt, og þaðan yfir að Vötnum. Eftir hádegi er gengið meðfram Jökulsá í Lóni og endað í kirkjunni á Stafafelli. Harmonikkuleikur og söngur verður á völdum áningarstöðum. Leiðsögumaður verður Gunnlaugur B. Ólafsson.</description>
Búið að ráða yfirlækni á heilsugæslustöðuna
      <description>Ragnhildur Magnúsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn en hún hefur starfað við stofnunina í sumar. Inga Jóna Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins segir útlit fyrir að það takist að manna aðra læknastöðu fljótlega í 5-6 mánuði. Við getum því sagt að að þetta líti bara þokkalega út miðað við hvernig læknamálin hafa verið hjá okkur. Læknaskipti hafa verið ansi ör og það sem af er þessu ári hafa 10 til 12 læknar verið hér tímabundið. Það verður ekki síst gott fyrir íbúa héraðsins og starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar að það komist einhver festa á í þessum málum.</description>
Um 90% ökumanna með beltin spennt á hringveginum
      <description>Mikil umferð var í nágrenni Hafnar um helgina og mátti ekki á milli sjá hvort fleiri væru á leið austur eða að koma að austan. Aldrei  hefur verið eins mikið af  húsbílum, bílum með hjólhýsi eða fellihýsi og verið hefur undanfarið. Lögreglan á Höfn segir að engin umferðaóhöpp hafi orðið um helgina svo vitað sé en hraði í umferðinni sé alltof mikill og hafa margir verið teknir fyrir hraðakstur og í dag tók lögreglan einn á 140 km hraða í nágrenni Hafnar. Lögreglan hefur kannað bílbeltanotkun undanfarna daga og segir að innanbæjar hafi ástandið mikið batnað og notkun aukist. Á hringveginum eru  rúm 90 % þeirra sem lögreglan hefur skoðað verið með beltin spennt og eins er með útlendingana.
Þar sem mesta umferðarhelgi ársins eru það tilmæli lögreglunnar að ökumenn stilli hraðanum í hóf og sýni tillitssemi og geri sitt til að umferðin megi verða slysalaus.</description>
Afi minn var Otto Tulinius kaupmaður
      <description>“Saga búsetu á Höfn í Hornafirði hófst með í að Otto Tulinius kaupmaður flutti verslun sína frá Papósi til Hafnar í Hornafirði sumarið 1897” segir í aðfaraorðum í bókinni Saga Hafnar í Hornafirði. Björn Jónsson og Sigríður Margrét Magnúsdóttir sem nú búa í Kaupmannshúsinu sem síðar fékk nafnið Kaupfélagshúsið fengu heimsókn um helgina, þar voru á ferðinni Ragna Tómasdóttir ásamt manni hennar Erik Pedersen, “Afi minn var Ottó Tulinius kaupmaður og okkur langaði að skoða húsið sem hann bjó í og því erum við hingað komin” sagði Ragna. Otto bjó í húsinu   frá 1897 til 1901, en þá flutti hann frá Höfn til Akureyrar. Ragna og Erik hafa búið í Danmörku frá 1958 en tala mjög góða íslensku þrátt fyrir að hafa búið öll þessi ár í Danmörku.</description>
Frjálsíþróttafólk USÚ gerir það gott á Sumarhátið UÍA
      <description>Nokkur hópur frjálsíþróttafólks hélt á Sumarhátið UÍA sem haldin var á Egilsstöðum um síðustu helgi. Liðsmenn USÚ sópuðu að sér verðlaununum á mótinu og þegar upp var staðið urðu þeir í öðru sæti í stigakeppni mótsins, sem verður að teljast góður árangur.  Úlfljótsmenn áttu einnig þrjá bestu árangrana í drengjaflokki, besta afrek vann Fannar Blær Egilsson fyrir 800 m hlaup, annar í stigakeppninni var Bjarni M. Jónsson fyrir  árangur sinn í langstökki og þriðji var Björn Ármann Jónsson fyrir árangur í kúluvarpi. Þessi þrír og fleiri íþróttamenn ætla að leggja land undir fót um verslunarmannahelgina og taka þátt í Unglingalandsmóti á Sauðárkróki, óskum við þeim góðs gengis.</description>
Styrktarsamningur undirritaður til þriggja ára
      <description>Knattspyrnudeild Sindra og Esso endurnýjuðu styrktarsamning sem verið hefur í gangi síðustu ár þar sem sérstök áhersla er lögð á að styrkja yngri flokka knattspyrnudeildar Sindra. Undirskriftin fór fram þegar Vestrahorn, nýja Þjónustumiðstöðin var formlega tekin í notkun í síðustu viku. Samningurinn sem er til þriggja ára felur m.a. í sér að Esso kaupir búninga á tvö lið í yngri flokkunum og verður búningurinn með Esso merkinu að framan og Safnkorti að aftan. Einnig fær knattspyrnudeildin fjárhæð í hvert skipti sem einhver verslar og notar safnkort Esso hér á Höfn. Knattspyrnudeildin vill því hvetja styrktaraðila að nota kortið og þá um leið styrkja yngri deildirnar hjá knattspyrnudeildinni.</description>
Leikara vantar í vel sett víkingaþorp
      <description>Aðstendur kvikmyndarinnar um Bjólfskviðu leita nú að fimmtán til tuttugu leikurum í aukahlutverk og hafa þeir fengið Leikfélag Hornafjarðar til að aðstoða við leitina. “Okkur vantar hraustlega karlmenn sem eru víkingalegir í útliti, helst vel skeggjaða og ef ekki þá að þeir geti láti sér vaxa skegg fram að upptöku segir Magnús J. Magnússon hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Einnig er leitað að konum sem passa í hlutverk þeirra kvenna sem eru í víkingaþorpinu. Í þorpinu sem á að vera vel sett víkingaþorp eiga að vera jarlar og hraustmenni. Stefnt er á að takan fara fram í byrjun september n.k. Búið er að smíða hluta af leikmyndinni í fjörunni fyrir neðan veginn út á Stokksnes, ekki langt frá Almannaskarði.</description>
Flugeldasýning á Jökulsárlóni
      <description>Eins og undanfarin ár þá verður flugeldasýning á Jökulsárlóni um verslunarmannahelgina. Flugeldasýningin á lóninu var upphaflega aðeins fyrir starfsmenn og hluti af gleðskap sem haldin var í lok sumarvertíðarinnar. Sýningin þótti svo stórkostleg að staðarhaldarinn Einar Björn Einarsson var hvattur til að hafa hana opna og gefa öðrum tækifæri á að vera þar viðstöddum. Á síðasta ári var svo flugeldasýningin auglýst að hún væri öllum opin og mættu þá um 1200 manns sem komu víða að til að upplifa þá stórkostlegu sýn þegar flugeldum var skotið á loft af jöklum út á lóninu og sjá þegar flugeldarnir lýstu upp umhverfið og sköpuðu birtu sem engum líður úr minni sem þar voru.</description>
      <alt>Flugeldasýning á Jökulsárlóni</alt>
Ekki skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku
      <description>Félagar úr Harmonikkufélagi Hornafjarðar tóku þátt í Samgönguhátíðinni í Öræfum á dögunum. Þegar samkomugestir komu að vatnadrekanum bárust harmonikkutónarnir á móti hópnum en þar höfðu spilararnir komið sér fyrir í tjaldi á  rétt við drekann, sex  með harmonikkur, einn trommuleikari og einn með bassa. Harmonikkufélag Hornafjarðar var stofnað 1993 og eru félagar 26. Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson er æfingastjóri og er hann ásamt Zóphoníasi Torfasyni, að sögn Arnar Arnarsonar ( Bróa), höfuð og herðar harmonikkufélagsins. Virkir spilarar þ.e. þeir sem koma fram við hin ýmsu tækifæri og spila, eru um 10 og hinir styðja félagsskapinn með ráð og dáð enda ekkert skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku eða önnur hljóðfæri bara vera með ánægjunnar vegna.</description>
Litboltafélagið með grænt ljós
      <description>Litboltafélag Hornafjarðar hefur loksins fengið öll tilskilin leyfi til þess að geta hafið starfsemi og er skráning í félagið þegar hafin. Verið er að undirbúa pöntun á þeim búnaði sem notast í litboltaleiknum en til þess þurfti földan allan af leyfum. Litbolti eða paintball eins og margir þekkja íþróttina er enn ein jaðaríþróttin sem bætist við hérna á Hornafirði.  Íþróttin gengur út á skjóta mótspilara með sérútbúnum byssum og kúlum, innihald kúlanna er með öllu umhverfisvænt en þær springa þegar þær lenda á hörðum fleti. Skylda er að vera með grímu fyrir andlitinu til að hylja það fyrir kúlunum því mikill kraftur er í byssunum. Allskyns aukabúnaður er fáanlegur fyrir íþróttina sem gerir hana meira spennandi og skemmtilega.</description>
Útbreiðsla lúpínunnar
      <description>Þar sem áður voru gróðurlausir sandar og melar hefur lúpínan náð að breiða sig yfir stór svæði og  er hún óneitanlega falleg  meðan allt er í blóma. Ekki er lúpínan allstaðar æskileg og t.d. í þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur þurft að takmarka útbreiðslu hennar. Við Bæjarstaðarskóg hefur hún breitt sig út um allt og þar hefur her sjálfboðaliða tekið þátt í að fara á breiðurnar  með sláttuorfum og sigðu. Frá náttúruverndarsjónarmiði þurfum við að hindra útbreiðslu lúpínunnar og er búið að slá um tíu hektara svæði við Bæjarstaðarskóg og setja í stórar sátur en svo er eftir að skoða hvað hægt er að gera við þær segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Hann segir að gott ráð til að hindra útbreiðslu sé að beita kindum á lúpínuna þegar hún er að byrja að vaxa á vorin.</description>
Hús Kára og slökkviliðsins í Öræfum að verða tilbúið
      <description>Verið er að leggja síðustu hönd á smíði húss björgunarsveitarinnar Kára og Slökkviliðsins í Öræfum. Húsið er límtréshús um 300 fermetrar að stærð og er skammt  neðan við söluskálanum í Freysnesi.. Björgunarfélagið á hús á Fagurhólsmýri fyrir annan björgunarsveitarbílinn og búnað sveitarinnar en hús vantaði fyrir slökkvibílinn og brimdrekann og verða þeir í nýja húsinu.
Bygging hússins er mikið átak fyrir þessi félög en nauðsynin er mikil. Vel hentar að hafa björgunarbíla staðsetta sín hvoru megin við aðal óveðurssvæðið sem er austan við Svínafell og að Fagurhólsmýri.</description>
Sannsöguleg og gerðist í sjóslysinu mikla 1873 við Vestra-Horn
      <description>Eins og fram hefur komið á vefnum verður Óperan Fósturlandsins freyja ( Le Pays), flutt í Hafnarkirkju laugardaginn 24. júlí kl.20.00. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Gunnar Guðbjörnsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir.  Þá mun Elín Pálmadóttir kynna söguna fyrir gestum og verða sögumaður.  Íslenskri þýðingu verður varpað upp. Þar sem sögusvið óperunnar er sannsögulegt og sótt í  íslenskar heimildir og látin gerast á bænum Horni í Austur Skaftafellssýslu 1873 eftir sjóslysin hörmulegu við Vestra-Horn er gaman að fræðast um meira um hana.</description>
Slapp með skrámur en bíllinn ónýtur
      <description>Bílvelta varð á þjóðvegi eitt rétt austan við Flatey á Mýrum á þriðjudagskvöldið en ökumaður sem var einn í bílnum slapp með skrámur og eymsli í hálsi. Tildrög slyssins voru þau að kind stökk upp á veginn rétt framan við bílinn og náði ökumaður hennar að forða ákeyrslu en við það lenti bíllinn útaf og valt en kindin slapp. Bifreiðin sem er Mazda árgerð 1992 er ónýt  og er tjón unga ökumannsins tilfinnanlegt þar sem bifreiðin var ekki kaskótryggð og hann búinn að safna fyrir bílnum undanfarna mánuði og er að fara í skóla í Reykjavík í haust. Verðmæti bifreiðarinnar var  tæplega 190 þúsund og var eigandinn að koma frá Reykjavík þar sem hann keypti bílinn og átti eftir um 20 mínútna akstur heim til sín. Ökumaður var í bílbelti og á  90 km hraða þegar kindin stökk fyrir bílinn.</description>
Glaður dagur í Vestrahorni
      <description>Á fimmtudag verður nýi Essoskálinn í Vestrahornshúsinu við Vesturbraut formlega tekinn í notkun og af því tilefni verður margt gert til gamans, Karlakórinn Jökull tekur lagið, það verða haldnar stuttar ræður, börnunum verða gefnar blöðrur og Emmessís, ýmis tilboð verða í gangi svo sem 6 króna afsláttur á hverjum eldsneytislítra, kveikt verður á grillinu og öllum gefið að smakka.  Þetta er önnur ESSO stöðin á stuttum tíma sem er endurbyggð á landsbyggðinni en ESSO stöðin á Blönduósi var opnuð fyrir rúmum mánuði síðan.</description>
Ýmislegt má betur fara í umferðinni
      <description>Bílbelta notkun hér á Hornafirði hefur batnað frá því sem var í fyrra, svo er lögreglunni fyrir að þakka því þeir hafa tekið á þessum málum, segir Reynir Arnórsson umferðafulltrúi. Hvað farsímanotkun í akstri varðar, þar sem ekki er notaður handfrjáls búnaður, hefur ástandið stórversnað og er full ástæða fyrir ökumenn að taka það mál til endurskoðunar. Reynir hefur í samstarfi við slysavarnarfólk hér kannað hvar úrbóta er þörf í umferðarmálum og í áframhaldi af því haft samband við viðkomandi aðila um úrbætur. Ég er t.d. margbúinn að benda á að mála þurfi grindverkið við kröppu beygjuna við endann á Ránarslóð vestanmegin, það myndi gera hana mun sýnilegri, síðan eru nokkur gatnamót sem eru slysagildrur,  þar þarf að setja spegla, fjarlægja skilti sem birgja sýn og  eins vantar stöðvunarskildu merki segir Reynir.</description>
Aukning húsbíla á þjónustumiðstöðinni
      <description>Það hefur færst í aukana að gestir á þjónustumiðstöðinni á Höfn eru á húsbílum enda er  sérútbúin aðstaða þar fyrir þá eins og best gerist. Þar geta þeir fengið tengingu við rafmagn og eins er boðið upp á losun á ferðaklósettum sem ekki er mjög algengt á tjaldstæðum. Síðustu nótt voru hér m.a. 40 húsbílar í hópferð. Þetta er fjórða sumarið sem Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir reka þjónustumiðstöðina og segir Hugi að það sé mikil aukning á húsbílum, tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum. Samanborið við júlímánuð í fyrra þá er heldur meiri gisting á tjaldstæðinu þetta árið.</description>
Heilsa og útlit flytur í Sporthöllina
      <description>Snyrtistofan Heilsa og útlit á Höfn er að flytja af Bugðuleirunni í Sporthöllina og opnar þar um miðjan ágúst. Sigrún Sveinbjörnsdóttir eigandi stofunnar segir að starfsemin verði að mestu óbreytt því sem verið hefur og hún verður bæði með verslunina og allar þær meðferðir sem boðið hefur verið uppá og vonast hún til að geta bætt fleiru við sig. Ég verð með mína starfsemi þar sem verslunin í Sporthöllinni er og fæ þar vel einangrað herbergi þar sem starfsemi stöðvarinnar truflar ekki á neinn hátt. Ég held að þessi starfsemi mín passi vel við líkamsræktarstarfið og að fleiri komi til með að nýta sér þetta saman. Sigrún er með hand- og fótsnyrtingu fyrir karla og konur, andlitsböð og hreinsanir, varanlegar háreyðingar í andliti og einnig vaxmeðferð til að taka hár af fótleggjum og undan höndum.</description>
Citroenbílaeigendur á ferðinni
      <description>Félagar úr hinum ýmsu Citroenkúbbum frá 7 þjóðlöndum höfðu næturdvöl á tjaldstæðinu á Höfn og að sjálfsögðu voru þeir á gömlum og góðum Bragga Citroenbílum að undanskildum bílunum sem fararstjórarnir voru á sem voru Laplander og Unimok. Hópurinn kom til Íslands með Norrænu og er búinn að ferðast um landið og skoða allar helstu náttúruperlur. Fararstjórar ferðarinnar Karen Valdur og Dan Johanson frá Danmörku eru nú að koma til landsins í 10 skipti og segir Karen hópinn mjög ánægðan með ferðina og tók hún sérstaklega fram að vegasamgöngur  væru frábærar.</description>
Afhentu sveitarfélaginu afrakstur styrktarveislu
      <description>Hjónin Jón Sölvi Ólafsson kokkur og Guðbjörg Stefánsdóttir hafa afhent sveitarfélaginu kr. 486.851 sem er ágóði af styrktarveislu sem þau hjón stóðu fyrir í Nesjaskóla sl. vetur.
Fjárhæðinni verður ráðstafað samkvæmt ósk aðstandenda veislunnar til kaupa á góðum lyftustól í sundlaug Hafnar sem bæta á aðgengi fatlaðra að sundlauginni. Næsta skref er að velja rétta tækið og koma því fyrir.</description>
Góður afli hjá krökkunum í lúruveiðiferð
      <description>Menningarmiðstöð Hornafjarðar bauð krökkum á lúruveiðar í morgun.  Farnar voru tvær ferðir með 11 þátttakendur sem voru í öruggri umsjón Björns Arnarsonar og Gísla Karls Ágústssonar. Veðrið var eins og best verður á kosið og góð veiði út af Óslandinu og veiðimennirnir alsælir með ferðina og tvær körfur af lúru sem skipt var á milli þeirra. Lúra er Hornfirskt heiti yfir kola. Lúra var veidd á árum áður í Hornafirði, Skarðsfirði og var mikil búbót að fá nýmeti úr firðinum ásamt silungi og fugli.</description>
Mikið líf á hafnarbakkanum
      <description>Það hefur verið líflegt á bryggjunni á Hornafirði undanfarin kvöld þegar trillurnar eru að landa og útlendir ferðamenn  fylgjast vel með því. Fólk kemur mikið á bryggjuna og fylgist með þegar verið er að landa, skoðar í körin og margir vilja vita hvaða fiskar þetta eru segir Sívar Árni Scheving. Trillukarlar á Hornafirði hafa mokfiskað undanfarna daga og hefur afli verið frá tveim tonnum upp í fimm tonn á bát . Sívar sagði að mikið væri af ufsa í aflanum núna og er hann saltaður.</description>