Júlí
Flytjendur
Flytjendur
Flytjendur

31.07.2004 Júlí

Einstakur hljómburður við Vötn í Lóni

Það var margt um manninn upp við Vötn í Stafafellsfjöllum seinnipartinn í dag en þar voru haldnir tónleikar í þessari einstöku náttúruperlu. Veðrið var upp á sitt besta, sól á himni og vatnið spegilslétt. Þessir tónleikar eru hluti af skipulagðri útivistar- og tónlistardagskrá sem þeir bræður í Stafafelli í Lóni halda nú um helgina. Þegar búið var að setja upp svið á vatnsbakkanum sem lá út í vatnið, tengja hátalarana og gera allt klárt til tónleikahaldsins tók Bogomil Font hljóðnemann og kynnti tónleikana. Rödd hans ómaði í fjöllunum og þegar byrjað spila mátti heyra að þessi staður hefur alveg einstakan hjómburð.

Fyrir þá sem misstu af þessum einstaka aðburði hafa möguleika á að ná tónleikunum aftur þegar þeir verða endurteknir á morgun sunnudag kl.20:00 á sama stað.

Sjá myndasafn

Sjá nánar viðburðadagskrá

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica