Margir leggja leið sína á Hótel Vatnajökul
Hótel Vatnajökull sem er hluti af Fosshótelkeðjunni hefur nú verið opið síðan í maí og má segja að það sé fullbókað allt sumarið. Að sögn Þorgils Þorgilssonar hótelstjóra þá er mikill straumur af fólk sem leggur leið sína á hótelið, ekki bara til að gista heldur fara á veitingarstaðinn sem er á hótelinu og njóta útsýnisins sem staðurinn bíður upp á, bæði erlendir og íslenskir ferðamenn. Þetta er fyrsta árið sem Þorgils rekur hótelið og er matreiðslumeistarinn hjá honum Matthew McGuigan sem kemur frá Bandaríkjunum. Þorgils segir Matthew matreiðslusnilling sem eldar af mikilli list, bæði Íslenska þjóðarrétti sem erlenda með dyggri aðstoð Sigrúnar Huld sem sér um það að Íslenskir réttir fari fram á Íslenska vegu.
Fyrirhugað er á næstunni að bjóða Hornfirðingum upp á sérstakan matseðil að hætti bandaríska kokksins þar sem fólk getur prufað skemmtilega og framandi rétti úr Íslensku hráefni. Hótelið verður opið fram til miðjan september.





Skrifa athugasemd