80 ár liðin frá fyrsta fluginu til Íslands
Þótt reglulegar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Hornafjarðar kæmust ekki á fyrr en eftir 1940 kom það öðru hvoru fyrir að flugvélar hefðu viðkomu á Hornafirði fyrir þann tíma. Eftirminnilegasta heimsóknin af þessu tagi, og reyndar sú fyrsta er á efa lending tveggja flugvéla úr bandaríska flughernum um árið 1924. Þann 6.apríl sama ár hófu fjórar flugvélag sig á loft frá Seattle í Washington-fylki og var förinni heitið umhverfis jörðina. Vélarnar voru af gerðinni Doglas, 12 metra langar með 16 metra vænghaf og vógu rúm fjögur tonn fulllestaðar. Tveir menn voru í hverri flugvél: flugmaður og vélamaður. Í fyrsta áfanga ferðarinnar var flogið til Alaska en þar hlekktist einni vélinni á og heltist hún úr lestinni. Flugvélarnar þrjár sem eftir voru héldu hnattflugi sínu áfram til Kirkwall á Orkneyjum. Þar dvöldu flugmennirnir í nokkra daga áður en haldið var út yfir Atlandshafið til Hornafjarðar. Þegar hér var komið sögu voru liðnir um þrír og hálfur mánuður frá því að flugsveitin lagði af stað frá Seattle og höfðu flugmennirnir upplifað ýmiss konar hremmingar á leiðinni.
Á Hornafirði hafði koma flugvélanna verið vandlega undirbúin. Í byrjun júlí kom liðsforingi úr bandaríska flughernum hingað til að kanna fyrirhugaðan lendingarstað vélanna á Mikileyjarálnum. Fékk liðsforinginn Björn Eymundsson og Jóhann Albertsson, til að merkja lendingarsvæðið. Tók sú vinna um það bil þrjár vikur. Svæðið var afmarkað með baujum og flaggstöngum og 10 bálkestir voru hlaðnir í nærliggjandi eyjum til þess að flugmennirnir gæru áttað sig á vindáttinni. Laugardagsmorgunninn 2. ágúst barst skeyti til Hornafjarðar þess efni að flugvélarnar þrjár hefðu lagt af stað frá Kirkwall þá um morguninn. Áætlaður flugtími var 7 klukkustundir. Mikil eftirvænting greip um sig á Höfn en þangað hafði drifið að fjölda fólks úr sýslunni og frá Austfjörðum. Veður var ákjósanlegt, kyrrt, sólskin á lálendi en þoka í fjöllum. Um hádegi barst skeyti um að vélarnar hefðu lent í svarta þoku suður af Færeyjum og hefðu tvær snúið við en Erik Nelson, 36 ára gamall Svíi flugmaður þeirrar þriðju hélt áfram.
Upp úr hádegi tók fólk að týnast út í Mikiley og hafði þvílíkur mannssafnaður aldrei áður sést á Hornafirði. Kveikt var í bálköstunum og þrír mannaðir árabátar voru hafðir til taks á Mikileyjarálnum. Augu allra beindust til suð-austurs. Hópur fólks stóð á svokallaðri þúfu í Mikiley, þar á meðal Ólafur Eiríksson á Hvalnesi í Lóni, síðar búsettur á Bjargi á Höfn, og kom hann fyrstur auga á flugvél Nelsons. Þegar Nelson kom inn yfir Hornafjörð lækkaði hann flugið og sveif svo tvo hringi yfir kauptúninu og mannfjöldanum, sem veifaði höfuðfötum, höndum og vasaklútum og fagnaði flughetjunni með dynjandi húrrahrópum. Nelson renndi svo vélinni niður að Mikileyjarálnum og lenti heilu og höldnu kl.17:37 eftir um 8 klukkustunda flug. Nelson hafði orðið fyrstur til að fljúga yfir hafið til Íslands.
Flugkapparnir fóru lofsamlegum orðum um lendingarstaðinn og allan undirbúning og töldu víst að Hornafjörður yrði flughöfn í framtíðinni. Nelson hélt frá Hornafirði 5.ágúst og lenti á Reykjavíkurhöfn 5 klukkustundum síðar.
Heimild og myndir Saga Hafnar Í Hornafirði





Skrifa athugasemd