Spáð í veðrið um Verslunarmannahelgina
Nú þegar líður að Verslunarmannahelgi fara menn að spá í veðrið, hvar verður sólin. Margir ferðalangar hafa þegar tekið stefnuna á ákveðna staði þar sem verða hátíðarhöld um helgina burt séð frá því hvaða veðri veðurguðirnir ætla að úthluta, fyrir aðra skiptir veðrið meira máli en staðurinn og elta því sólina og hitann. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá verða hér suðlægar áttir og milt veður, getur orðið vætusamt og smá skúrir eða súld, hiti 10-15 stig.
Hornafjörður.is hafði samband við einn sjálfmentaðan veðurfræðing og óskaði eftir hans spá fyrir helgina, samkvæmt hans upplýsingum mun verða hér í Sveitarfélaginu rigning og smá súld fram á laugardag en þá mun stytta upp og verða ágætis veður til útiveru bæði á flugeldasýningunni á Jökulsárlóni og á útivistar- og tónlistarhátíðinni í Stafafelli.





Skrifa athugasemd